Bæjarstjórn
413. fundur
9. apríl 2026
kl.
16:00
-
17:05
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson
forseti bæjarstjórnar
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
aðalmaður
Birgir Jónsson
aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir
2. varaforseti bæjarstjórnar
Stefán Þór Eysteinsson
aðalmaður
Ragnar Sigurðsson
aðalmaður
Kristinn Þór Jónasson
aðalmaður
Heimir Snær Gylfason
varamaður
Jóhanna Sigfúsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir
bæjarstjóri
Gunnar Jónsson
embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson
embættismaður
Haraldur Líndal Haraldsson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
bæjarritari
Dagskrá
1.
Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 2025 - síðari umræða
Bæjarstjóri mælti fyrir ársreikningi Fjarðabyggðar og stofnan fyrir árið 2025 við síðari umræðu.
Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Heimir Snær Gylfason, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson, Þuríður Lillý Sigurðardóttir.
Bókun meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks við síðari umræðu ársreiknings Fjarðabyggðar 2025
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks fagnar þeim árangri sem birtist í ársreikningi Fjarðabyggðar fyrir árið 2025. Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins er jákvæð, bæði í A hluta og samstæðu (A og B hluta), þar sem rekstrarniðurstaða samstæðunnar er um 850 m.kr. og A hluta um 150 m.kr.
Niðurstaðan er sérstaklega ánægjuleg í ljósi þess að hún er umfram áætlanir í heild sinni og staðfestir þann viðsnúning í rekstri sem ráðist var í þegar núverandi meirihluti tók við ábyrgð á rekstri sveitarfélagsins.
Meirihlutinn leggur sérstaka áherslu á að þessi árangur hefur náðst samhliða því að ekki var gripið til nýrrar lántöku á árinu 2025, þrátt fyrir umfangsmiklar fjárfestingar. Fjárfestingar sveitarfélagsins hafa verið verulegar og þær mestu á kjörtímabilinu, en eru fjármagnaðar með bættri rekstrarafkomu og sjóðstreymi.
Jafnframt hefur skuldastaða sveitarfélagsins þróast í rétta átt. Skuldaviðmið hafa lækkað milli ára bæði fyrir A hluta og samstæðuna í heild, sem er skýr vísbending um sterkari fjárhagsstöðu og aukið svigrúm til framtíðar.
Meirihlutinn telur mikilvægt að halda áfram á þessari braut. Þrátt fyrir jákvæða niðurstöðu þarf undirliggjandi rekstur A hluta áfram að styrkjast til að geta staðið undir fjárfestingum og viðhaldsþörf. Það kallar á áframhaldandi aðhald, skýra forgangsröðun og ábyrga fjármálastjórn.
Árangurinn sem hér birtist er ekki tilviljun heldur afrakstur markvissrar vinnu, samstöðu bæjarstjórnar og starfsfólks sveitarfélagsins. Meirihlutinn þakkar starfsfólki og kjörnum fulltrúum fyrir þeirra framlag og leggur áherslu á að halda áfram þeirri vegferð að tryggja traustan rekstur, lækkandi skuldir og aukið svigrúm til uppbyggingar í þágu íbúa Fjarðabyggðar.
Bókun Fjarðalistans við síðari umræðu ársreiknings Fjarðabyggðar 2025
Fjarðalistinn fagnar jákvæðri rekstrarniðurstöðu fyrir árið 2025 þrátt fyrir lakari afkomu í A-hluta en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun.
Rekstrarniðurstaða ársins litast að verulegu leyti af sterkari tekjustofnum en gert var ráð fyrir, sér í lagi auknum skatttekjum á milli ára og hærra framlagi frá jöfnunarsjóði. Á sama tíma var launakostnaður lægri en áætlað var sem skýrist að miklu leyti af fjölda lausra stöðugilda, færri ársverkum og minni launahækkunum en gert var ráð fyrir. Ljóst er að áhrif þeirra munu að einhverju leyti færast á komandi ár. Á sama tíma er vert að nefna að annar rekstrarkostnaður sveitarfélagsins hækkaði verulega á milli ára og var um 365 milljónir umfram áætlun í A-hluta.
Ytri áhrifaþættir halda áfram að hafa veruleg áhrif á rekstur sveitarfélagsins. Fjármagnsliðir hafa lækkað milli ára og var 61 milljón krónum lægri en 2024 og hafa lækkað umtalsvert síðust ár. Mikilvægt er þó að undirstrika að reksturinn er áfram viðkvæmur fyrir breytingum í verðbólgu og vaxtastigi og nauðsynlegt að styrkja undirliggjandi rekstur til lengri tíma.
Engum dylst að fjárfestingarþörf sveitarfélagsins er mikil þrátt fyrir miklar framkvæmdir undanfarin ár og er því áfram áhyggjuefni að fjárfestingar ársins í A-hluta fari flestar fara fram úr áætlunum ársins. Að sama skapi eru það vonbrigði að engar fjárfestingar voru á leiktækjum í sveitarfélaginu eins og sést í ársreikningi á árinu 2025 þrátt fyrir þörf á viðhaldi og viðbótum víða.
Áskoranir í rekstri sveitarfélagsins eru áfram margar. Bætt rekstrarniðurstaða síðustu ára á rætur sínar að rekja til ákvarðana sem teknar voru snemma á kjörtímabilinu ásamt lægri fjármagnskostnaði, auknum skatttekjum ásamt auknum framlögum jöfnunarsjóðs sem jukust um tæpar 370 milljónir á milli ára. Því er ljóst að áfram þarf að sýna aga í fjármálum sveitarfélagsins og tryggja rekstrargrunn þess.
Rekstur sveitarfélagsins þarf að byggja á ábyrgri nýtingu sameiginlegra fjármuna þar sem leiðarljósið er jöfnuður og velferð. Fjarðalistinn mun áfram standa vörð um grunnþjónustu við íbúa og leggur áherslu á að breytingar í rekstri muni ekki leiða af sér skertra þjónustu né aukinni gjaldtöku.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum ársreikning Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2025 og áritar hann.

2.
Bæjarráð - 938
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Heimir Snær Gylfason, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson,
Fundargerð bæjarráðs frá 30. mars staðfest með 9 atkvæðum.

3.
Bæjarráð - 939
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 7. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

4.
Fjölskyldunefnd - 55
Til máls tóku Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir og Ragnar Sigurðsson.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 23. mars staðfest með 9 atkvæðum.

5.
Stjórn menningarstofu - 34
Enginn tók til máls.
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 23. mars utan liðar 1 staðfest með 9 atkvæðum.

6.
Ungmennaráð - 23
Enginn tók til máls.
Fundargerð ungmennaráðs frá 11. mars staðfest með 9 atkvæðum.

7.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 56
Enginn tók til máls.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 8. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

8.
Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfjarðar Búðareyri 12
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingu á deiliskipulagi.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til staðfestingar bæjarstjórnar breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfjarðar. Ekki bárust efnislegar athugasemdir á auglýsingartíma en umsagnir bárust frá Vegagerðinni og Minjastofnun. Í framhaldi af auglýsingu kom í ljós að erfitt yrði að koma þremur húsum fyrir á reitnum og tillögunni því breytt þannig að gert er ráð fyrir tveimur húsum í stað þriggja. Auk þess var aðkomu að lóðinni breytt og er hún nú frá Búðareyri.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfjarðar.

9.
Óveruleg breyting á Deiliskipulag Miðbæjar Nesk - Hafnarbraut 6
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir staðfestingu óverulegrar breytingar deiliskipulags og grenndarkynningar.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar óverulegri breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar Neskaupstaðar ásamt niðurstöðu grenndarkynningar vegna Hafnarbrautar 6 í Neskaupstað. Grenndarkynningu er lokið og barst ein umsögn á auglýsingatíma.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum óverulega breytingu deiliskipulagsins og niðurstöðu grenndarkynningar.

10.
Umsókn um lóð Grímseyri 5, 750 Fáskrúðsfirði
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir afgreiðslu lóðarumsóknar.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu umsókn um lóðin Grímseyri 5 á Fáskrúðsfirði með breytingu á byggingarreit samkvæmt uppfærðu deiliskipulagi.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum úthlutun lóðarinnar.