Fara í efni

Vor í Fjarðabyggð

Dags
11. maí - 24. maí
Staðsetning
Fjarðabyggð
Vor í Fjarðabyggð fer fram dagana 11.–24. maí. Íbúar, fyrirtæki, félagasamtök og stofnanir eru hvött til að taka þátt í vorhreinsun og hjálpast að við að fegra nærumhverfið fyrir sumarið.
Deildu

Fjarðabyggð boðar til árlegrar vorhreinsunar dagana 11.–24. maí. Verkefnið er liður í því að hvetja íbúa til að huga að umhverfi sínu, tína rusl, snyrta lóðir og koma garðaúrgangi í réttan farveg.

Á meðan á verkefninu stendur mun starfsfólk þjónustumiðstöðva Fjarðabyggðar hirða garðaúrgang sem íbúar setja við lóðamörk. Garðaúrgangur getur til dæmis verið gras, lauf, greinar og afklippur af runnum og trjám. Annað rusl, svo sem brotajárn, plast, timbur, húsgögn eða heimilissorp, á ekki að fara með garðaúrgangi.

Móttökustöðvar Fjarðabyggðar verða opnar samkvæmt hefðbundnum opnunartíma. Aukaopnun verður laugardaginn 23. maí á öllum móttökustöðvum frá kl. 13:00–17:00.

Íbúum verður einnig boðið að nálgast moltublandaða mold á völdum stöðum í Fjarðabyggð.

Nánari upplýsingar um framkvæmd, flokkun, móttökustöðvar og staðsetningar fyrir moltublandaða mold má finna undir Vor í Fjarðabyggð.