Fara í efni
09.10.2026 Fréttir, Menning

Tónlist, tröll og leikhús á dagskrá í Fjarðabyggð

Deildu

Það verður ýmislegt í boði í Fjarðabyggð um helgina og í næstu viku. Útgáfuhóf, tónleikar Nýdanskrar og lokaviðburðir BRAS eru meðal þess sem stendur til boða þessa helgina. Í næstu viku tekur svo við leiksýning í Egilsbúð og zumba á Breiðdalsvík í tilefni af Bleikum október.

Ljóð, tónlist og afmæli í Jónshúsi

Föstudagskvöldið 9. október verður útgáfuhóf Stefaníu Guðbjargar Gísladóttur vegna ljóðabókarinnar Urðarmána í Jónshúsi í Seldal í Norðfirði. Um leið verður fagnað 30 ára afmæli ljóðafélagsins. Dagskráin hefst kl. 20 og verður boðið upp á upplestur, tónlist og kaffiveitingar. Öll eru velkomin.

Tröllasýning og Nýdönsk á laugardegi

Laugardaginn 10. október verður fjölskyldusýningin Gýpa – Tröllasýning í Valhöll á Eskifirði kl. 15–15:30. Sýningin er hluti af BRAS, menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi, og aðgangur er ókeypis.

Um kvöldið stígur Nýdönsk á svið í Frystihúsinu á Breiðdalsvík. Hausttónleikar sveitarinnar bera yfirskriftina Fullkomið farartæki og hefjast kl. 21. Á dagskránni verða þekkt lög hljómsveitarinnar í bland við nýrra efni.

Næturhiminn á Stöðvarfirði

Sunnudaginn 11. október verður prentnámskeiðið Næturhiminn í Sköpunarmiðstöðinni á Stöðvarfirði kl. 12–14. Þar fá þátttakendur að gera tilraunir með liti og vatn og skapa einþrykk innblásin af næturhimninum.

Námskeiðið er fyrir 8–16 ára og er hluti af lokadagskrá BRAS. Þátttaka er ókeypis en skráning fer fram á contact@fishfactory.is.

Blakkát í Egilsbúð

Föstudaginn 16. október verður leikritið Blakkát eftir Björk Jakobsdóttur sýnt í Egilsbúð í Neskaupstað kl. 20. Leikritið fjallar með farsakenndum hætti um alkóhólisma, minnisleysi og mannlegan breyskleika.

Miðasala er á svið.is. Sýningin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára og ungmenni á aldrinum 16–18 ára þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.

Pólska kvikmyndahátíðin hefst

Pólska kvikmyndahátíðin í Fjarðabyggð hefst föstudaginn 16. október. Kvikmyndaunnendur eru hvattir til að kynna sér dagskrána á viðburðasíðu hátíðarinnar.

Zumba í Bleikum október

Laugardaginn 17. október verður zumba með Lilju Björk í íþróttasalnum á Breiðdalsvík kl. 11–12. Viðburðurinn er hluti af dagskrá Krabbameinsfélags Austfjarða í Bleikum október.

Nánari upplýsingar má finna í viðburðadagatali Fjarðabyggðar. Íbúar og viðburðahaldarar eru jafnframt hvattir til að senda inn viðburði svo fleiri geti fylgst með því sem er í boði.