Fara í efni
02.09.2026 Tilkynningar

Vetraropnun tekur gildi í stofnunum Fjarðabyggðar

Deildu

Vetraropnun hefur tekið gildi í flestum íþrótta- og menningarstofnunum Fjarðabyggðar. Breyttir opnunartímar gilda meðal annars í sundlaugum og bókasöfnum sveitarfélagsins og sumaropnun safna er lokið.

Sundlaugar

Vetraropnun tók gildi í sundlaugunum á Norðfirði, Eskifirði og Fáskrúðsfirði 1. september.

Stefánslaug á Norðfirði

  • Mánudaga til fimmtudaga kl. 7:00–20:00
  • Föstudaga kl. 7:00–18:00
  • Laugardaga kl. 11:00–18:00
  • Sunnudaga kl. 13:00–18:00

Líkamsræktin fylgir sama opnunartíma. Opnunartími fyrir korthafa er frá klukkan 05:00 - 00:00. 

Sundlaug Eskifjarðar

  • Mánudaga til fimmtudaga kl. 7:00–20:00
  • Föstudaga kl. 7:00–18:00
  • Laugardaga og sunnudaga kl. 11:00–16:00

Líkamsræktin fylgir sama opnunartíma. Opnunartími fyrir korthafa er frá klukkan 05:00 - 00:00. 

Sundlaug Fáskrúðsfjarðar

  • Mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:00–19:00
  • Þriðjudaga og föstudaga kl. 16:00–20:00
  • Lokað um helgar

Sundlaugin á Stöðvarfirði hefur lokað eftir sumaropnun. 

Sundlaugin í Breiðdal verður áfram opin samkvæmt sumartíma til og með 15. september:

  • Mánudaga til föstudaga kl. 14:00–20:00
  • Laugardaga og sunnudaga kl. 13:00–17:00

Nánari upplýsingar um sundlaugar Fjarðabyggðar.

Bókasöfn

Bókasöfn Fjarðabyggðar hafa tekið upp hefðbundinn opnunartíma eftir skerta sumaropnun.

Bókasafnið í Neskaupstað

  • Mánudaga kl. 14:00–19:00
  • Þriðjudaga til fimmtudaga kl. 14:00–17:00

Bókasafnið á Eskifirði

  • Mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 14:00–17:00
  • Miðvikudaga kl. 14:00–18:00

Bókasafnið á Reyðarfirði

  • Mánudaga til miðvikudaga kl. 14:00–17:00
  • Fimmtudaga kl. 14:00–18:00

Bókasafnið á Fáskrúðsfirði

  • Mánudaga kl. 14:00–18:00
  • Miðvikudaga og fimmtudaga kl. 14:00–17:00

Bókasafnið á Stöðvarfirði

  • Þriðjudaga kl. 14:00–19:00
  • Fimmtudaga kl. 14:00–17:00

Bókasafnið á Breiðdalsvík

Bókasafnið er tímabundið lokað. Stefnt er að því að opna safnið aftur þriðjudaginn 15. september. Hefðbundinn opnunartími þess er:

  • Þriðjudaga kl. 14:00–18:00
  • Fimmtudaga kl. 17:00–19:00

Bókasöfnin eru lokuð þá virka daga sem ekki eru tilgreindir og um helgar.

Nánari upplýsingar um bókasöfn Fjarðabyggðar.

Söfn

Sumaropnun Safnahússins í Neskaupstað, Sjóminjasafns Austurlands á Eskifirði og Íslenska stríðsárasafnsins á Reyðarfirði lauk 31. ágúst. Söfnin eru opin eftir samkomulagi frá 1. september til 31. maí.

Safnið Frakkar á Íslandsmiðum á Fáskrúðsfirði verður áfram opið alla daga kl. 10:00–18:00 til og með 30. september. Frá 1. október verður safnið opið eftir samkomulagi.

Hægt er að semja um heimsókn í síma 470 9063 eða með tölvupósti á sofn@fjardabyggd.is.

Nánari upplýsingar um söfn Fjarðabyggðar.

Upplýsingar um opnunartíma stofnana Fjarðabyggðar eru einnig aðgengilegar undir Opnunartímar efst á vef sveitarfélagsins.