LISTASMIÐJUR MENNINGARSTOFU FJARÐABYGGÐAR FYRIR BÖRN SUMARIÐ 2024
07.05.2024Menningarstofa Fjarðabyggðar mun, líkt og síðustu ár, halda úti listasmiðjum sumarið 2024 en þar eru í boði skapandi námskeið fyrir börn sem lokið hafa 3.-7. bekk grunnskóla (fædd 2011-2015). Boðið verður upp á fjölbreytt námskeið víðsvegar um Fjarðabyggð. Athugið að takmarkaður fjöldi barna kemst í hverja smiðju og fyrstur kemur fyrstur fær. Reiknað er með 12-15 börnum í allar smiðjur nema Textílsmiðjuna sem tekur við 8 þátttakendum.