Fáskrúðsfjarðarhöfn
Fáskrúðsfjarðarhöfn er stór fiskihöfn með þrjár meginbryggjur í rekstri, auk smábátahafnar. Þær eru Hafskipabryggjan, Fiskeyrarbryggjan og tvær löndunarbryggjur. Þá hefur Hafnarsjóður Fjarðabyggðar látið gera litla bryggju við safnið Fransmenn á Íslandi. Þar geta skemmtibátar lagt að við 8 metra langt viðlegurými, auk þess sem nýta má þessa skemmtilegu trébryggju til dorgveiða og útiveru á góðviðrisdögum. Landaður afli hefur á undanförnum árum numið á bilinu 25 til 60 þúsund tonnum. Heildarlengd bryggjukanta er 362 metrar. Dýpi við bryggjur er um 7 etrar en 8 metrar við Hafskipabryggjuna. Fiskeyrarbryggja er með lengstan viðlegukant eða 113 metra við 6,5 metra dýpi. Mesta dýpi er við Hafnskipabryggjuna eða 8 metrar á 71 metra löngum kafla.