Norðfjarðarhöfn
Norðfjarðarhöfn er ein stærsta fiskihöfn landsins. Hafnarsvæðið skiptist upp í aðalhöfn annars vegar, innst í firðinum, og hins vegar eru bryggjur í miðbæ Neskaupstaðar. Í aðalhöfninni eru Togarabryggja, Löndunarbryggja, Olíubryggja og smábátahöfn. Bryggjur miðbæjarins eru Bæjarbryggja og Gamla bæjarbryggjan. Sú fyrrnefnda er stálþil og þjónar aðallega sem viðlega, en einnig hafa minni skemmtiferðaskip haft þar viðkomu. Gamla bæjarbryggjan er hluti af Safnahúsinu í Neskaupstað og þjónar þessi skemmtilega trébryggja sem dorgveiði- og útsýnisbryggja. Miðja vegu á milli aðalhafnarinnar og Gömlu bæjarbryggjunnar er svo Nótabryggjan, sem þjónar netaverkstæði sem þarna er staðsett. Miklum afla er landað á Norðfirði. Aðalhöfnin er ein stærsta uppsjávarfiskihöfn landsins og fer mikið magn af frosnum sjávarafurðum um frystigeymslur í Neskaupstað. Starfræktur er fiskmarkaður á Norðifirði sem þjónustar aðallega smábátum sem þar hafa landa. Landaður afli hefur numið ríflega 210 þúsund tonnum að jafnaði undanfarin ár. Skipakomur eru um og yfir 500 á ári.