Laus er til umsóknar staða aðstoðarleikskólastjóra við Dalborg á Eskifirði. Um er að ræða fullt starf.
Staðan er laus frá 1. ágúst 2015.
Dalborg er fjögurra deilda leikskóli á Eskifirði og nemendur eru rúmlega 70. Leikskólinn er staðsettur í eins kílómetra fjarlægð frá grunnskóla staðarins en þar er elsta deild skólans starfrækt, sem og tónlistarskóli og bókasafn. Í skólanum ríkir góður starfsandi og mikið og gott samstarf er á milli fræðslustofnana í Fjarðabyggð.
Leikskólinn nýtir uppeldisaðferðirnar Uppeldi til ábyrgðar og ART og starfar í anda fjölgreindarkenningar Howards Gardners. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð svo sem bættum árangri í læsi og stærðfræði og verklegt er vitið. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans; www.leikskolinn.is/dalborg/
Menntun og hæfniskröfur
- Umsækjandi skal hafa leyfisbréf til kennslu í leikskóla
- Reynsla af stjórnun og viðbótarmenntun er æskileg
- Krafa um færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði í starfi og faglegan metnað
Umsóknir og umsóknarfrestur
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Félags stjórnenda í leikskólum og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er framlengdur til 16. júní.
Sótt er rafrænt um starfið hér á vef Fjarðabyggðar.
Einnig er tekið við umsóknum á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Reyðarfirði, í umslagi merktu "Starfsumsókn aðstoðarleikskólastjóri Dalborg".
Umsóknum skal fylgja greinargott kynningarbréf með yfirliti yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, upplýsingum um frumkvæði á sviði fræðslumála, ábendingum um meðmælendur sem og almennum upplýsingum um viðkomandi.
Allar frekari upplýsingar veitir Sóley Valdimarsdóttir, skólastjóri, í síma 476 1431 eða á netfanginu dalborg@skolar.fjardabyggd.is.
Nánari upplýsingar um laus störf hjá Fjarðabyggð og starfsumsóknir