mobile navigation trigger mobile search trigger

Bræðralag í Fjarðabyggð

04.10.2015

Hinir landsþekktu tónlistarmenn Ómar Guðjónsson og Tómas R. Einarson leika lög af Bræðlagi, nýútkominni plötu þeirra félaga, í BRJÁN í Neskaupstað, sunnudagskvöldið 4. október kl. 20:30.

Bræðralag í Fjarðabyggð
Bræðralag - Ómar Guðjónsson gítarleikari og Tómas R. Einarsson, kontrabassaleikari.

Gítarleikarinn Ómar Guðjónsson og kontrabassaleikarinn Tómas R. Einarsson hafa spilað saman í áratug, ýmist tveir einir eða í fjölmennari hljómsveitum. Innanlands og utan: Flatey, Djúpavík, Moskva, Andorra, Berlín, Havana, Washington DC....

Nú hafa þeir gert langþráðan draum að veruleika: að taka upp plötu þar sem þeir semja hvor fyrir annan. Þar er músíkölsk samræða æðsta markmiðið, hvort sem um er að ræða sveiflu, latíntónlist eða ballöður.

Upptakan fór fram á Kolsstöðum í Borgarfirði, á sólríkum sumardögum þar sem hvít jöklabreiða bar við augu út um upptökuglugga ásamt hrauni og blómstrandi kjarri.

Þeir félagar kynna plötuna Bræðralag á tónleikaferð um landið í haust. Í Neskaupstað halda þeir tónleika í BRJÁN sunnudagskvöldið 4. október og hefjast þeir kl. 20.30.

Verð aðgöngumiða er 2.500 kr.