mobile navigation trigger mobile search trigger
05.09.2016

Dagar myrkurs 2016

Dagar myrkurs á Austurlandi verða dagana 2. til 6. nóvember. 

Fyrirtæki, félög og stofnanir á Austurlandi taka höndum saman á þessari skemmtilegu menningarhátíð og fagna myrkrinu, hver með sínum hætti. 

Þeir sem verða með viðburði í Fjarðabyggð eru hvattir til að senda upplýsingar á helga.g.jonasdottir@fjardabyggd.is. Allir viðburðir verða auglýstir á viðburðadagatali sveitarfélagsins, auk þess sem Dagar myrkurs í Fjarðabyggð verða auglýstir í staðarmiðlum.