mobile navigation trigger mobile search trigger
23.08.2016

Innritun í Tónskóla Neskaupstaðar

Innritun fyrir skólaárið 2016-2017 fer fram í tónmenntastofu Nesskóla sem hér segir:

Fimmtudagur 25. ágúst frá kl. 14:00 -16:00 - nemendur sem sóttu um skólavist í vorinnritun mæti til að staðfesta umsóknir sínar og fá tíma.

Föstudagur 26. ágúst frá kl. 14:00 – 16:00 - innritun fyrir nýja nemendur.

Foreldrar / forráðamenn eru beðnir um að mæta með nemendum við innritun og vinsamlegast takið með stundaskrár almennu skólanna.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 29. ágúst.

 

Skólastjóri