mobile navigation trigger mobile search trigger
13.07.2015

Íslandsstofa á Austurlandi - Þjónusta við fyrirtæki í útflutningi

Björn H. Reynisson, verkefnastjóri hjá Íslandsstofu, verður staddur á Austurlandi 3. - 4. september nk. Hann býður upp á viðtöl við fyrirtæki í útflutningi og aðra sem hyggja á útflutning á vöru eða þjónustu. Hér gefst tækifæri til að ræða hugmyndir, spyrja spurninga um útflutning og fá upplýsingar um þjónustu Íslandsstofu á þessu sviði.

Skráningarfrestur er til 26. ágúst.

Skráning og nánari upplýsingar hjá Katrínu Reynisdóttur verkefnastjóra - katrin@austurbru.is • 470 3870 • 853 7765