mobile navigation trigger mobile search trigger
05.01.2017

Kynning vegna skipulagsbreytinga Stöðvarfirði

Kynning á skipulagslýsingu vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 þéttbýlisuppdráttur fyrir Stöðvarfjörð, reitur I1 ásamt skipulagslýsingu tillögu að deiliskipulagi Söxu.

Skipulagslýsing vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 ásamt skipulagslýsingu tillögu að deiliskipulagi Söxu verða til sýnis á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð og í þjónustugátt í bókasöfnunum á Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði, Eskifirði og Norðfirði og á heimasíðu Fjarðabyggðar, fjardabyggd.is, svo þeir sem þess óska geti kynnt sér lýsingarnar og komið með ábendingar vegna þeirra.

Kynningartími er til 26. janúar nk. Skila skal ábendingum til skipulags- og byggingarfulltrúa á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð eða á netfangið skipulagsfulltrui@fjardabyggd.is.

Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Fjarðabyggð

Sjá skipulagslýsingu - aðalskipulagsbreyting Stöðvarfirði (pdf)

Sjá skipulagslýsingu - deiliskipulagsbreyting Söxu (pdf)