mobile navigation trigger mobile search trigger
01.07.2015

Ofanflóðavarnir Eskifirði

Framkvæmdum í og við Bleiksá er nú að mestu lokið. Vinna við yfirborðsfrágang er hafin og eru verklok þann 15. ágúst nk. á áætlun.
Framkvæmdir í og við Hlíðarendaá hefjast 6. júlí nk. Verður farvegur árinnar dýpkaður og breikkaður, auk þess sem lega farvegarins breytist að hluta. Jarðvegur sem losnar um verður nýttur í snúningssvæði, sem verið er að útbúa fyrir almenningssamgöngur neðan Strandgötu. Áætluð verklok eru 30. nóvember 2015. 

Sjá teikningar vegna framkvæmdanna:

Ofanflóðavarnir Eskifjörður yfirlitsmynd.pdf

Snúningsplan Strandgötu Eskifirði.pdf