Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri, sækir fyrirtæki í bæjarkjörnum Fjarðabyggðar heim og býður starfsfólki til samtals.
Viðtalstímarnir verða sem hér segir:
• Sjúkrahúsið í Neskaupstað: Þriðjudagurinn 20. júní kl. 8:00-10:00
• Síldarvinnslan í Neskaupstað: Þriðjudagurinn 20. júní kl. 10:00-12:00
• Eskja, Eskifirði: Miðvikudagurinn 21. júní kl. 9:00-11:00
• Alcoa Fjarðaál, Reyðarfirði: Fimmtudagurinn 22. júní kl. 9:00-11:00
• Loðnuvinnslan, Fáskrúðsfirði: Föstudagurinn 23. júní kl. 12:00-14:00
• Sólbrekka, Mjóafirði: Mánudaginn 26. júní kl. 14:00-16:00
• Sköpunarmiðstöðin, Stöðvarfirði: Þriðjudagurinn 27. júní kl. 9:00-11:00
Þá má alltaf bóka viðtalstíma við bæjarstjóra og embættismenn á bæjarskrifstofu eftir samkomulagi virka daga kl. 08:15 – 16:00 í síma 470 9000.
Einnig má hafa beint samband við bæjarstjóra og embættismenn með tölvupósti á vef sveitarfélagsins, fjardabyggd.is.
Verið hjartanlega velkomin!