Sjóstangveiðifélagið Sjónes í Neskaupstað heldur sitt árlega aðalmót í sjóstöng, 17. og 18.júlí, en mótið er hluti af mótaröð sem haldin er um allt land af sjóstangveiðifélögum og telur til stiga til íslandsmeistara.
Mótið verður sett fimmtudagskvöldið 16. júlí. Róið verður frá 06:00 til 13:00 báða daga.
Verðlaunaafhending og lokahóf á laugardagskvöldinu.
Þátttakendur þurfa að vera skráðir í sjóstangveiðifélag en skráningu þarf að vera lokið miðvikudaginn 8. júlí.
Nánari upplýsingar veitir Sjóstangveiðifélagið Sjónes í Neskaupstað