mobile navigation trigger mobile search trigger
01.02.2016

Skákdagurinn haldinn í Fjarðabyggð

Þann 26. janúar sl. var Skákdagur Íslands haldinn um land allt. Skákdagurinn er haldinn á fæðingardegi Friðriks Ólafssonar, fyrsta stórmeistara Íslendinga, sem varð 81 árs gamall. Kjörorð Skákdagins eru einkunnarorð skákhreyfingarinnar: Við erum ein fjölskylda. Með þeim er undirstrikað að allir geta teflt, óháð kyni, aldri eða líkamsburðum.

Skákdagurinn haldinn í Fjarðabyggð
Hákon Sófusson og Rúnar Bernburg

Fjarðabyggð tók þátt í Skákdeginum í ár með því að vígja tvö ný taflsett, annað í sundlaug Neskaupstaðar og hitt í sundlaug Eskifjarðar. Taflsettin eru sérútbúin fljótandi töfl sem henta afar vel í heita potta, en slík taflsett hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár.

Taflsettin voru vígð í sundlaugunum á Eskifirði og í Neskaupstað.

Í Neskaupstað tefldu feðgarnir Einar Már Sigurðarson, skólastjóri Nesskóla, bæjarfulltrúi, fyrrum þingmaðurinn og fyrrum formaður skáksambands Austurlands og sonur hans Sigurður Steinn, fyrstu skákina í pottinum.

Á Eskifirði tefldi fyrrum forstöðumaður sundlaugar Eskifjarðar og fyrrum Austurlandsmeistari í skák, Hákon Sófusson við Rúnar Bernburg fyrrum stjórnanda í skákfélagi Austurlands og margverðlaunaðan skáksérfræðing.

Íbúar eru hvattir til að kíkja í sund og grípa í eina skák, hvort sem er í pottinum eða á þurru landi. Það eina sem þarf að gera er að biðja starfsfólk sundlauganna um taflsettin.

 

Fleiri myndir:
Skákdagurinn haldinn í Fjarðabyggð
Einar Már Sigurðarson og Sigurður Steinn Einarsson