mobile navigation trigger mobile search trigger
21.02.2017

Skólastjóri - Grunnskólinn á Eskifirði

Laus er staða skólastjóra við Grunnskólann á Eskifirði 

Leitað er að kraftmiklum og lausnamiðuðum leiðtoga sem er tilbúinn að leiða þróttmikið skólastarf og taka þátt í eflingu skólasamfélagsins í Fjarðabyggð. 

 Helstu verkefni:

  • Ábyrgð á rekstri skólans og þróunarvinnu
  • Fagleg forysta, dagleg  stjórnun og samhæfing  starfskrafta skólans
  • Víðtækt samstarf við stofnanir, heimili og samfélag

Menntun og hæfniskröfur:

  • Umsækjandi skal hafa leyfisbréf til kennslu í grunnskóla 
  • Viðbótarmenntun í stjórnun er æskileg 
  • Reynsla af rekstri, stjórnun og þróunarstarfi er æskileg
  • Færni í mannlegum samskiptum, metnaður og frumkvæði

Skólastjóri skal hafa metnaðarfulla framtíðarsýn í skólamálum og vera tilbúinn að leiða faglegt og félagslegt starf innan skólans og stuðla að öflugu samstarfi innan skólasamfélagsins í Fjarðabyggð.

Í Grunnskólanum á Eskifirði eru um 150 nemendur og í sama húsnæði er tónlistarskóli, bókasafn og elsta deild leikskólans. Milli þessara stofnana er mikið og gott samstarf. 

Í skólunum ríkir góður starfsandi og þar er góð vinnuaðstaða. Einkennisorð skólans eru „virðing, þekking, færni og áræði“. Skólinn nýtir uppeldisaðferðirnar Uppeldi til ábyrgðar og ART og tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð svo sem bættum árangri í læsi og stærðfræði og verklegt er vitið. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans; www.grunnesk.is 

Umsóknir og umsóknarfrestur 

Staðan er laus frá 1. ágúst 2017. Konur jafnt sem karlar eru hvattir til að sækja um starfið.  Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga. 

Umsóknarfrestur er til 12. mars. Umsóknir berist rafrænt á fjardabyggd@fjardabyggd.is eða í merktu umslagi á skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Reyðarfirði.

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, upplýsingar um frumkvæði á sviði fræðslumála, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.  

Allar frekari upplýsingar veitir Þóroddur Helgason, fræðslustjóri, í síma 860 8331 eða á netfanginu thoroddur.helgason@fjardabyggd.is