mobile navigation trigger mobile search trigger
27.12.2017

Starfsleyfi fyrir olíubirgðastöð á Eskifirði

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir olíubirgðastöð Skeljungs hf. á Eskifirði. 

Umhverfisstofnun hefur ekki hug á að hafa opinn kynningarfund um tillöguna en berist ósk um fund verður það endurskoðað.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendast á Umhverfisstofnun.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 19. janúar 2018.