mobile navigation trigger mobile search trigger

Start up Tourism á Austurlandi

27.11.2015

Klukkan 13:00 - 21:00

Startup Tourism er nýr viðskiptahraðall sem er ætlað að stuðla að faglegri undirstöðu hjá nýjum fyrirtækjum í ferðaþjónustu og dreifingu ferðamanna í kringum landið, allt árið um kring.

Á næstu tveimur mánuðum verða haldnar sérstakar vinnusmiðjur á landsbyggðinni í tengslum við verkefnið. Þar gefst áhugasömum tækifæri til að kynna sér Startup Tourism frekar, móta viðskiptahugmyndir sínar og mynda teymi. Ekki er nauðsynlegt að vera með viðskiptahugmynd til að taka þátt í vinnusmiðjunum.

Þriðja vinnusmiðjan verður haldin á Egilsstöðum þann 27. nóvember nk.

Dagskrá hefst kl. 13:00 og lýkur um kl. 21:00.

Sjá nánar