mobile navigation trigger mobile search trigger
07.04.2017

Sumarstörf - 18 ára og eldri

Sumarstarfsmenn, 18 ára og eldri, vinna frá 15. maí til lok ágúst mánaðar eða samkvæmt samkomulagi. Vinnutími 8 klst./dag, laun skv. launaflokki 117 í kjarasamningi hlutaðeigandi stéttarfélaga.

 

Störf sumarstarfsmanna á þjónustumiðstöðvum Fjarðabyggðar eru ýmis umhverfisverkefni sem gróflega geta flokkast í tvo flokka:

  • Grófvinna - sláttur með orfi, undirbúningur fyrir malbikun og hellulögn, o.fl.
  • Fínvinna - undirbúningur og viðhald blóma- og runnabeða, plöntun blóma og trjáa o.fl.

 

*Ef til yfirvinnu kemur, 16 ára og eldri, er það valfrjálst og samkvæmt verkefnastöðu og samkomulagi hverju sinni.

 

Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2017.