mobile navigation trigger mobile search trigger
13.02.2017

Viðlagatrygging Íslands í heimsókn

Viðlagatrygging Íslands (VTÍ ) kom í heimsókn til Fjarðabyggðar sl. fimmtudag, en heimsóknin er liður í átaki stofnunarinnar til að bæta þekkingu á hlutverki hennar og skráningu opinberra mannvirkja í eigu sveitarfélaganna sem vátryggð eru hjá VTÍ.

Viðlagatrygging Íslands í heimsókn
Fulltrúar Fjarðabyggðar og VTÍ að loknum fundi

Fundarmenn áttu góðar og markvissar samræður um vátryggingavernd mannvirkja í eigu sveitarfélagsins og um mikilvægi þess að skráð verðmæti þeirra sé uppfært reglulega til að tryggja að eignirnar séu vátryggðar að fullu áður en vátryggingaratburður á sér stað.

Á fundinum var rætt um mikilvægi þess að íbúar séu meðvitaðir um hvort  vátryggingavernd þeirra sé í lagi. Fram kom á fundinum að ef innbú er vátryggt almennri lausafjártryggingu hjá vátryggingafélagi rennur hluti iðgjaldsins til VTÍ og tryggir þannig vátryggingavernd innbúsins komi til tjóns af völdum jarðskjálfta, eldgosa, vatns-, aur- eða snjóflóða skv. skilgreiningum laga um VTÍ (55/1992). Ef slík vátrygging er ekki til staðar greiðast engar bætur vegna innbús ef til tjóns kemur. Allar fasteignir eru hins vegar skylduvátryggðar gegn náttúruhamförum og eru iðgjöldin innheimt samhliða brunatryggingum fasteigna hjá almennu vátryggingafélögunum.