Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, verður á næstu dögum með viðtalstíma í bæjarkjörnum Fjarðabyggðar.
09.10.2017
Viðtalstímar bæjarstjóra í byggðakjörnum Fjarðabyggðar
Fundirnir verða sem hér segir:
Stöðvarfirði 10. október 16:00 – 18:00 í Þjónustugátt bókasafnsins.
Fáskrúðsfirði 11. október 16:00 – 18:00 í Þjónustugátt bókasafnsins.
Reyðarfirði 12. október 16:00 – 18:00 á bæjarskrifstofunni, Hafnargötu 2
Eskifirði 17. október 16:00 – 18:00 í Þjónustugátt bókasafnsins.
Neskaupstað 18. október 16:00 – 18:00 í Þjónustugátt bókasafnsins.
Viðtalstími í Mjóafirði verður ákveðin í samráði við íbúa.
Íbúar eru hvattir til að mæta
Bent er á að alltaf má bóka viðtalstíma við bæjarstjóra og embættismenn á bæjarskrifstofu eftir samkomulagi með því að hringja í síma 470 – 9000 milli 8:15 og 16:00 alla virka daga. Einnig er hægt að hafa beint samband við bæjarstjóra eða embættismenn í tölvupósti.