mobile navigation trigger mobile search trigger
08.02.2016

137. fundur eigna- skipulags- og umhverfisnefndar

Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 137. fundur  

haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, mánudaginn 8. febrúar 2016 og hófst hann kl. 16:00

Fundinn sátu Jón Björn Hákonarson formaður, Svanhvít Yngvadóttir, Einar Már Sigurðarson, Kristjana Guðmundsdóttir og Dýrunn Pála Skaftadóttir. Einnig sátu fundinn Valur Sveinsson skipulags- og byggingarfulltrúi og Marinó Stefánsson sviðstjóri framkvæmda- umhverfis- og veitusviðs.

Páll Baldursson sat 1.lið fundarins.

Fundargerð ritaði Valur Sveinsson skipulags- og byggingarfulltrúi.

Dagskrá:

1.

1602039 - Almenningssamgöngur 2016

Fyrir liggur að Alcoa Fjarðaál mun breyta vaktafyrirkomulagi sínu þann 1.mars nk., þannig að í stað tveggja 12 tíma vakta á sólarhring verða teknar upp, þrjár 8 tíma vaktir. Þetta mun hafa áhrif á áætlun almenningssamgagna undir nafni Strætisvagna Austurlands (SvAust).
Verkefnastjóra falið að vinna málið áfram og málinu vísað til frekari vinnslu í bæjarráði hvað varðar fjárhagslegar skuldbindingar.

 

2.

1601006 - 730 Ægisgata 9 - Framlenging á lóðaleigusamningi

Lagður fram tölvupóstur Margrétar Konráðsdóttur fh. Skútubergs ehf, dagsettur 23. desember 2015 og 13. janúar 2016, þar sem sótt er um að lóðarleigusamningur fyrir Ægisgötu 9 á Reyðarfirði verði endurnýjaður. Á lóðinni eru sementstankar. Erindinu var frestað á 135.- og 136. fundi nefndarinnar.  Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa, dagsett 5. febrúar 2016.  Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að framlengja lóðarleigusamning um 6 ár í samræmi við viðræður við forsvarsmenn Skútaberg ehf.

 

3.

1509171 - 750 Deiliskipulag urðunarstaðar í Þernunesi

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti deiliskipulag urðunarstaðar í Þernunesi, skipulagsuppdráttur, greinagerð og umhverfisskýrsla, dags. 26. nóvember 2015. Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.

 

4.

1602013 - Framkvæmdaleyfi til malarnáms í Fossá

Lögð fram efnistökuumsókn Einars Más Einarssonar, Verkís fh. Landsnets hf, dagsett 2. febrúar 2016, þar sem óskað er eftir leyfi til að taka 700 m3 af efni úr farvegi Fossár í Reyðarfirði. Samþykki landeiganda liggur fyrir.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að efnistaka verði leyfð og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfið.

 

5.

1602021 - 730 Austurvegur 9 - Byggingarleyfi - breyta gluggum

Lögð fram byggingarleyfisumsókn Jóhanns Óskars Þórólfssonar, dagsett 2.febrúar 2016, þar sem sótt er um leyfi til að fjölga póstum í gluggum húss hans að Austurvegi 9 á Reyðarfirði. Samþykki annarra eiganda liggur fyrir.  Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingaráformin og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.

 

6.

1601216 - 740 Þiljuvellir 10 - Byggingarleyfi

Lögð fram ódagsett byggingarleyfisumsókn Sveins Einarssonar, móttekin 18. janúar 2016, þar sem sótt er um leyfi til að staðsetja gám við hús hans að Þiljuvöllum 10 á Norðfirði.  Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingaráformin þannig að gámurinn falli að húsinu og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.

 

7.

1602018 - 750 Búðarvegur 30 - Beiðni um að vegi verði lokar

Lagður fram tölvupóstur Egils Guðjónssonar, dagsettur 1. febrúar 2016, þar sem beðið er um að veginum neðan við hús hans að Búðavegi 30 á Fáskrúðsfirði verða lokað vegna slysahættu.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd getur ekki fallist á að veginum verði lokað. Nefndin felur framkvæmda-, umhverfis- og veitusviði að skoða aðstæður við Búðaveg 30 með tilliti til umferðaröryggis.

 

8.

1601226 - Breytingar á byggingarreglugerð

Lagt fram bréf Hafsteins Pálssonar fh. umhverfis- og auðlindaráðherra, dagsett 22. janúar 2016, þar sem óskað er eftir umsögn um framkomin drög að breytingum á byggingarreglugerð nr. 112/2012 sem miða að því að lækka byggingarkostnað.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við drögin en telur að frekari breytinga sé þörf með tilliti til stærðar verkefna.

 

9.

1601229 - Hringtorg á gatnamót vegna Norðfjarðargangna

Lagt fram bréf Íbúasamtaka Eskifjarðar, dagsett 26. janúar 2016, þar óskað er eftir því að bæjaryfirvöld fari fram á að hringtorg verði sett á gatnamót frá Eskifirði að nýjum Norðfjarðarvegi.
Lagt fram bréf Vegagerðarinnar, dagsett í febrúar 2016, vegna T-gatnamóta ásamt fylgiskjölum.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd minnir á að áður en til útboðs Norðfjarðarganga kom hafi öll framkvæmdin verið kynnt íbúum, vandlega yfirfarin og samþykkt. Nefndin mun því ekki fara fram á að T-gatnamótum við Eskifjörð verði breytt í Hringtorg

 

10.

1601265 - 400.mál til umsagnar frumvarp til laga um um vatnsveitur sveitarfélaga (skilgreining og álagning vatnsgjalds)

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir minnisblað fjármálastjóra Fjarðabyggðar.

 

11.

1601266 - 404.mál til umsagnar frumvarp til laga um um uppbyggingu og rekstur fráveitna

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir minnisblað fjármálastjóra Fjarðabyggðar.

 

12.

1602002 - Aðalfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi - 18.febrúar

Aðalfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi verður haldinn að Hótel Sögu þann 18. febrúar.  Fulltrúi sviðsins mætir á aðalfundinn.

 

13.

1403148 - Girðing(steinhleðsla) og frágangur milli Skólavegs og Fáskrúðsfjarðakirkjugarðs

Undirritaður fer fram á að Fjarðabyggð og Fáskrúðsfjarðarkirkjugarður geri með sér 3 ára samning um frágang í kringum kirkjugarðinn skv. þeim tillögum sem liggja fyrir. Á fundi nr. 128 eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar var erindi um sama mál vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
Sviðstjóra falið að vinna málið áfram.

 

14.

1307015 - Starfsleyfi fráveitna á starfssvæði Heilbrigðiseftirlits Austurlands

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við að Starfsleyfi fráveitna á starfssvæði Heilbrigðiseftirlits Austurlands verði endurnýjað.

 

15.

1508050 - Jarðhitaleit í Fjarðabyggð - 2012 – 2015

Lagt fram til kynningar.

 

16.

1601209 - Verkefni framkvæmda- umhverfis- og veitusviðs 2016

kynning á framkvæmdum og verkefnum sviðsins.
Stærstu verkefnin eru bygging leikskólans í Neskaupstað.

 

17.

1601270 - Egilsbúð - viðhaldsmál

Samningar um viðhaldsmál Egilsbúðar, utanhússklæðning og endurnýjun glugga.
Sviðstjóra falið að setja verkefnið í útboð.

 

18.

1602003F - Afgreiðslur byggingafulltrúa - 72

Samþykkt

18.1.

1602020 - 740 Miðstræti 16 - stöðuleyfi fyrir gám

Samþykkt

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00.