mobile navigation trigger mobile search trigger
19.09.2016

154. fundur eigna- skipulags- og umhverfisnefndar

Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 154. fundur  

haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði,

mánudaginn 19. september 2016 og hófst hann kl. 16:00

Fundinn sátu: Jón Björn Hákonarson formaður, Svanhvít Yngvadóttir, Einar Már Sigurðarson, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Ragnar Sigurðsson, Valur Sveinsson skipulags- og byggingarfulltrúi og Marinó Stefánsson sviðstjóri framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs.

Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson sviðstjóri framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs

Dagskrá:

1.  

1606041 - Tillaga að fyrirkomulagi jarðgerðar

Þennan lið fundarins sátu Jón Þórir Frantzson og Róbert Beck frá Íslenska Gámafélaginu og Ólöf Vilbergsdóttir verkefnastjóri umhverfismála. Kynning frá Jóni Þór Frantzsyni Íslenska Gámafélaginu á tillögu að jarðgerð í sveitarfélaginu. Nefndin felur verkefnastjóra umhverfismála að vinna málið frekar fyrir næsta fund í samstarfi við íslenska Gámafélagið ásamt aðgerðaráætlun um aukna úrgangsflokkun.

 

2.  

1609100 - Ábendingar og óskir golfklúbbana í Fjarðabyggð til ESU

Á 25. fundi íþrótta- og tómstundanefndar voru forsvarsmenn golfklúbbana í Fjarðabyggð boðaðir til að ræða mál númer 1608047; Endurnýjun á rekstrar- og uppbyggingarsamningum við íþróttafélög í Fjarðabyggð sem eiga og reka sína eigin íþróttaaðstöðu.

Á fundinum komu fram ábendingar og óskir allra golfklúbbana sem snúa að eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd. Íþrótta- og tómstundafulltrúi tók þær saman og vísaði til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar. Nefndin vísar minnisblaðinu til bæjarráðs í tengslum við endurnýjun á rekstrar- og uppbyggingarsamningum sem eru til skoðunar.

 

3.  

1609024 - 740 Eyrargata 5 - umsókn um framlengingu á stöðuleyfi vinnubúða

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu til næsta fundar.

 

         Ragnar Sigurðsson vék af fundi undir þessum fundarlið

4.  

1609025 - Beiðni um framlengingu á stöðuleyfi starfsmannabúða að Haga 2016-2017

Lagt fram bréf Ormarrs Örlygssonar fh. Alcoa Fjarðaáls, dagsett 5. ágúst 2016, þar sem óskað er eftir framlengingu stöðuleyfis starfsmannabúðanna að Haga. Jafnframt er óskað eftir afstöðu sveitarfélagsins til þess að skuldbindingum Alcoa Fjarðaáls vegna hreinsunar, tæmingar og skila á svæðinu, verði á ábyrgð eiganda starfsmannabúðanna.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir útgáfu stöðuleyfis á sömu forsendum og árið 2015 og miðast það við þann fjölda gámaeininga sem var á svæðinu þegar stöðuleyfið rann út þann 1. júlí 2016. Nefndin samþykkir ekki að skuldbindingar Alcoa Fjarðaáls vegna starfsmannabúðanna verði á ábyrgð eiganda starfsmannabúðanna.

 

5.  

1609054 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna lagningar 66 kV strengs um Norðfjarðarós.

Lagt fram minnisblað Axels Vals Birgissonar hjá Mannvit hf. fh. Landsnets hf, dagsett 9. september 2016, þar sem sótt er um framkvæmdaleyfi vegna endurnýjunar Neskaupstaðarlínu 1 um Norðfjarðarós. Samþykki landeiganda, Veiðifélags Norðfjarðarár og Hafrannsóknarstofnunar liggur fyrir.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfið.

 

6.  

1607089 - 730 Vallargerði 7 - umsókn um byggingarleyfi, breytt notkun

Grenndarkynningu, vegna byggingarleyfisumsóknar Marleen Önnu Meirlaen fh. Bakkagerðis ehf, dagsett 18. júlí 2016, þar sem sótt var um leyfi til að breyta notkun íbúðarhússins að Vallargerði 7 á Reyðarfirði í gistiheimili, er lokið. Þrjár athugasemdir bárust. Lagt fram bréf Réttvísi ehf fh. eiganda Vallargerðis 8, dagsett 13. september 2016. Lagt fram bréf eiganda Vallargerðis 15, dagsett 13.september 2016. Lagt fram bréf eiganda Vallargerðis 17, dagsett 12.september 2016. Lögð fram umsögn skipulags- og byggingarfulltrúa dagsett 19. september 2016.  Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að rétt sé að taka tillit til þeirra athugasemda sem borist hafa þar sem bílastæði eru ekki nægilega mörg og umferð ferðamanna og fólksflutningabíla um Vallargerði þegar orðin mikil vegna þeirrar gistingar sem boðið er upp á við götuna í dag. Umsókn um breytta notkun Vallargerðis 7 er því hafnað. Endanlegri afgreiðslu vegna grenndarkynningar er vísað til bæjarstjórnar.

 

7.  

1609105 - 755 Sævarendi - umsókn um lóð undir jarðspennistöð

Lögð fram lóðarumsókn Guðmundar Hólm Guðmundssonar fh. RARIK ohf, dagsett 13. september 2016, þar sem sótt er um lóð undir jarðspennistöð yst við Sævarenda á Stöðvarfirði. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að grenndarkynna umsóknina. Grenndarkynning nái til Fjarðarbrautar 15, 17 og 19 og Sævarenda 7.

 

         Jón Björn Hákonarson vék af fundi undir þessum fundarlið.

8.  

1609103 - 740 Urðarteigur 23 - byggingarleyfi, klæðning utanhús

Lögð fram byggingarleyfisumsókn Bjarna Guðmundssonar og Halldóru G. Hákonardottur, dagsett 13. september 2016, þar sem sótt er um leyfi til að einangra og klæða hús þeirra, að Urðarteig 23 á Norðfirði. að utan
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.

 

9.  

1301195 - 735 Strandgata 12 - lóðamál

Lagt fram til kynningar tillaga að samkomulagi vegna lóðarmála Strandgötu 12 á Eskifirði.

 

10.  

1609047 - 740 Hólsgata 6 - byggingarleyfi, svalir

Lögð fram byggingarleyfisumsókn Krzysztof Zbigniew Sakaluk, dagsett 8.september 2016, þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir við hús hans að Hólsgötu 6 á Norðfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.

 

11.  

1507100 - 735 Bleiksárhlíð 18, endurn. lóðarleigus. og afm. bílastæða

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur málið fyrir að nýju á næsta fundi nefndarinnar.

 

12.  

1609122 - 750 Skólavegur 14 - Framkvæmdir á lóðmörkum

Lagt fram bréf Alberts Kemp, dagsett 13. september 2016, þar sem óskað er eftir svari á því hvort framkvæmdir á lóðarmörkum Skólavegar 12 og 14 séu í samræmi við samþykktir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
Að mati eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar eru framkvæmdir sem gerðar hafa verið á lóðarmörkum Skólavegar 12 og 14 ekki í samræmi við samþykkt nefndarinnar. Skipulags- og byggingarfulltrúa er falið að sjá til þess að framkvæmdin sé í samræmi við samþykkt nefndarinnar.

 

13.  

1605156 - Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - eigna-,skipulags og umhverfisnefndar

Nefndin ræddi um fjárheimildir fyrir árið 2017.

 

14.  

1208097 - 755 - Deiliskipulag Saxa

Lögð fram lýsing vegna skipulagsáætlunarinnar, dagsett 16. september 2016, unnin af Landmótun. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir lýsinguna fyrir sitt leyti og vísar endanlegri afgreiðslu til bæjarstjórnar.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00.