mobile navigation trigger mobile search trigger
23.08.2016

165. fundur hafnarstjórnar

Hafnarstjórn - 165. fundur

haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, þriðjudaginn 23. ágúst 2016 og hófst hann kl. 16:00

 Fundinn sátu Sævar Guðjónsson, Pálína Margeirsdóttir, Ævar Ármannsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Kristín Ágústsdóttir, Steinþór Pétursson.

 Fundargerð ritaði: Steinþór Pétursson, framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna

 Dagskrá:

 

1.

1601010 - Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2016

Fundargerðir Hafnasambands Íslands nr. 386 dags. 16. ágúst 2016 lögð fram til kynningar.

 

2.

1608071 - Stefnumörkun fyrir Hafnasamband Íslands

Erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 19. ágúst 2016 þar sem óskað er eftir umsögn um stefnumörkun Hafnasambands Íslands og skulu þær berast fyrir 16. september 2016. Stefnumörkunin verðu svo tekin til umræðu á hafnasamabandsþingi á hausti komandi.

 

3.

1201079 - Tilkynning um fyrirhugaða 4.000 tonna laxeldisstöð Laxar fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði

Umsögn um tillögu að matsáætlun um 4000 tonna ársframleiðslu á laxi í sjókvíum í Fáskrúðsfirði. Var vísað til framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna og skipulags- og byggingafulltrúa til umsagnar. Lagt fram til kynningar.

 

4.

1607033 - Komur skemmtiferðaskipa 2016

Bréf Kristins Þórs Jónssonar dags. 7. júlí 2016 vísað til hafnarstjórnar frá bæjarráði. Farið var yfir erindi bréfsins og framkvæmdastjóra falið að svara bréfritara í samræmi við umræðu á fundinum.

 

5.

1604155 - Styrkbeiðni frá Sjósportsklúbbi Austurlands

Bréf Sjósportsklúbbs Austurlands dags. 15. júlí 2016 þar sem óskað er eftir styrk fyrir inntaki og grind í hús Sjóminjasafns Austurlands á Eskifirði. Erindinu er hafnað, en hafnarstjórn veitir ekki styrki til íþróttafélaga þar sem starfsemi þeirra fellur undir annan málaflokk hjá sveitarfélaginu.

 

6.

1605165 - Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2017 ásamt langtímaáætlun

Undirbúningur fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2017 ásamt gjaldskrá og langtímaáætlun. Vísað til áframhaldandi vinnu framkvæmdastjóra.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:40.