mobile navigation trigger mobile search trigger
20.03.2017

171. fundur eigna- skipulags- og umhverfisnefndar

Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 171. fundur  

haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði,

20. mars 2017 og hófst hann kl. 16:00

Fundinn sátu Jón Björn Hákonarson formaður, Svanhvít Yngvadóttir Aðalmaður, Einar Már Sigurðarson Aðalmaður, Esther Ösp Gunnarsdóttir Aðalmaður, Ragnar Sigurðsson Varaformaður, Valur Sveinsson Embættismaður og Marinó Stefánsson Embættismaður.  Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson. 

Dagskrá: 

1.

1703028 - Viðbragðsáætlun vegna Öskufalls

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir drög að viðbragðsáætlun vegna Öskufalls og samþykkir þau fyrir sitt leyti

2.

1703027 - Viðbragðsáætlun vegna ofanflóða, skriðufalla og snjóflóða

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir drög að viðbragðsáætlun vegna ofanflóða, skriðufalla og snjóflóða og samþykkir þau fyrir sitt leyti.

3.

1703026 - Viðbragðsáætlun vegna hópslysa

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir drög að viðbragðsáætlun vegna hópslysa og samþykkir þau fyrir sitt leyti.

4.

1702223 - Vatns- og holræsagjöld á ótengdar fasteignir

Framlögð greinargerð og tillaga fjármálastjóra vegna vatns- og holræsagjalda á eignir sem ekki eru tengdar veitukerfum Fjarðabyggðar. Lagt er til að fallið verði frá álagningu gjalda á slíkar eignir í ljósi breytinga á lögum. 1.mgr. 19.gr. orðist svo; "Af þeim fasteignum í sveitarfélaginu þar sem tenging er fyrir hendi við mörk fasteignar, skal árlega greiða fráveitugjald (holræsagjald) og skal því varið til þess að standa straum af rekstri og viðhaldi fráveitu sveitarfélagsins." Bæjarráð hefur tekið vel í tillögu en óskar eftir að eigna- skipulags- og umhverfisnefnd taki ákvörðun í málinu.  Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu fjármálastjóra og vísar breytingu á gjaldskrá til samþykktar bæjarráðs.

5.

1703044 - Aðalfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi 23.mars

Aðalfundarboð á aðalfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra að sækja fundinn.

6.

1703035 - Vinnuskóli 2017

Umhverfisstjóri leggur fyrir fundinn tillögu um að vinnutími unglinga í 8. og 9. bekk grunnskóla Fjarðabyggðar, í Vinnuskóla Fjarðabyggðar, verði einungis fyrir hádegi, frá kl. 08-12 á daginn. Vinnutímabilið sem þeim býðst í ár eru 10 vikur, vika 23 (6. júní) til og með viku 33 (18.ágúst).
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd óskar eftir frekari upplýsingum frá umhverfisstjóra.

7.

1703067 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir 12 x 24 m2 dúkskemmur á lóð Loðnuvinnslunnar hf, Hafnargötu 1 á Fáskrúðsfirði,

Lögð fram stöðuleyfisumsókn Elísar B. Eiríkssonar hjá Eflu hf. fh. Loðnuvinnslunnar hf, dagsett 8. mars 2017, þar sem sótt er um stöðuleyfi fyrir 288 m2 dúkskemmu á lóð fyrirtækisins að Hafnargötu 1 á Fáskrúðsfirði. Sótt er um stöðuleyfi til 7. mars 2018.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að veita stöðuleyfi til eins árs og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út stöðuleyfi.

8.

1703062 - 730 Fagradalsbraut 10 og 12 - Byggingarleyfi, hesthús

Lögð fram byggingarleyfisumsókn Önnu Berg Samúelsdóttur, dagsett 8. mars 2017, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 145,6 2 og 548,7 m3 hesthús á lóðinni Fagradalsbraut 10-12 á Reyðarfirði. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.

9.

1606100 - 740 deiliskipulag fólkvangs Neskaupstaðar

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, tillögu að deiliskipulagi Fólkvangs Neskaupstaðar, skipulagsuppdráttur og greinagerð, dags. 9. janúar 2017. Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga.
Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.

10.

1702085 - Ofanflóðavarnir - Ljósá - framkvæmdaleyfi

Framlagður til kynningar verksamningur vegna ofanflóðavarna við Ljósá á Eskifirði að fjárhæð 208.049.372 kr. Bæjarráð hefur samþykkt samninginn.

11.

1606037 - Almenningssamgöngur - ungmennaráð

Lagt fram minnisblað framkvæmda- og umhverfissviðs um áætlaðan kostnað við gjaldfrjálsar almenningssamgöngur fyrir aldurshópinn 16 til 18 ára. Bæjarráð fól framkvæmda- og umhverfissviði að útfæra reglur vegna endurgjaldslausra afnota ungmenna 16 til 18 ára. Unnið er að gerð reglnanna og reiknað með að þær verði tilbúnar í vikunni. Sviðstjóra falið að ganga frá reglunum og leggja þær fram til samþykktar í bæjarráði.

13.

1703099 - Breyting á byggingarreglugerð - frestur til 27.mars

Lagðar fram til kynningar fyrirhugaðar breytingar á byggingarreglugerð nr. 112/2012.

14.

1703103 - 740 Sæbakki 10a - byggingarleyfi, viðbygging

Lögð fram byggingarleyfisumsókn Elísabetar Guðrúnar Birgisdóttur, dagsett 14.mars 2017, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 13 m2 og 27,8 m3 viðbyggingu við hús hennar að Sæbakka 10 á Norðfirði. Samþykki nágranna liggur fyrir.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.

15.

1611002 - 730 Sunnugerði - botnlangi

Íbúum við Sunnugerði á Reyðarfirði hafa verið kynntar hugmyndir um að gera götuna að botnlangagötu. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að tilraun verði gerð með að gera Sunnugerði að botnlangagötu. Tilraunin verði frá 1.apríl til 1. október næstkomandi. Lokun verður milli Sunnugerðis 12 og 14.

16.

1703110 - 234. mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á sviði samgangna (innleiðing alþjóðlegra skuldbindinga, EES-reglur),

Lagt fram til kynningar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á sviði samgangna (innleiðing alþjóðlegra skuldbindinga, EESreglur),234. mál.

17.

1611048 - Ályktun frá aðalfundi KFF um málefni Eskjuvallar

Aðalfundur Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar haldinn á Reyðafirði 6.október 2016 skorar á Fjarðabyggð að koma að gerð uppbyggingaráætlunar fyrir aðalleikvöll til knattspyrnuiðkunar á Eskifirði fyrir komandi fjárhagsáætlun sveitarfélagsins með knattspyrnufélagi Fjarðabyggðar, þar sem fram kæmi hvernig sveitarfélagið hyggst byggja upp boðlegan völl til knattspyrnu.
Íþrótta- og tómstundafulltrúi hefur rætt við forsvarsmenn KFF og þeir telja mikilvægt að það sé gerð áætlun um hvenær og hvernig ráðist verður í umbætur á vellinum. Félagið myndi huga vinnu sinni við völlinn mismunandi eftir því hvort ráðist verði í þær framkvæmdir eftir 1, 3 eða 10 ár og því nauðsynlegt að félagið sé upplýst og að sveitarfélagið sé með einhverja áætlun í gangi. Í ár væri t.d. frábær tími til að taka völlinn í gegn þar sem liðið spilar í 2. deildinni, en liðið mætti þá spila alla sína leiki á Norðfjarðarvelli. Líklegast þarf að hækka völlinn um 70-120 cm auk þess sem það þarf að taka ákvörðun um hvort gerður verði þar gervisgrasvöllur í fullri stærð eða farið í umbætur á grasinu.
Eigna-, skipulags- og umhvefisnefnd þakkar erindið og mun skoða þessi mál.

18.

1210191 - 755 Bankastræti 2 og 4 - Beiðni um að Fjarðabyggð leysi til sín lóð

Lögð fram drög að afsölum vegna lóðanna við Bankastræti 2 og 4 á Stöðvarfirði en eigendur lóðanna hafa lýst yfir áhuga á að Fjarðabyggð leysi lóðirnar til sín þar sem þær verða ekki nýttar frekar. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við afsölin fyrir sitt leyti. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs.

19.

1701228 - 750 Stekkholt 20 - Umsögn um rekstrarleyfi

Lagt fram bréf Elínar Helgu Kristjánsdóttur og Gests Valgeirs Gestssonar, Stekkholti 20 á Fáskrúðsfirði, dagsett 14. mars 2017, vegna breytinga sem orðið hafa á lögum og reglum varðandi sölu gistingar til ferðamanna og þeirra áhrifa sem þær hafa á þann rekstur sem þau hafa haft í húsinu.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur falið skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna drög að stefnu sveitarfélagsins vegna gisti- og veitingasölu,bréfi vísað í þá vinnu.

20.

1703119 - Útboð á viðhaldsmálum grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Lögð fram drög að útboðsgögnum fyrir þær framkvæmdir sem fyrirhugað er að bjóða út í grunnskólanum á Fáskrúðsfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra að vinna málið áfram.

21.

1610078 - Leigulönd í Fjarðabyggð

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir tillöguna og felur vinnuhópnum að vinna að málinu áfram á milli funda.

Jón Björn Hákonarson formaður vék af fundi undir lið 22.

22.

1703123 - 740 Egilsbraut 26 - byggingarleyfi - breytt notkun

Lögð fram byggingarleyfisumsókn Hákons Guðröðarsonar, dagsett 16. mars 2017, þar sem sótt er um leyfi til að breyta notkun Egilsbrautar 26 á Norðfirði úr sjóhúsi í veitingastað.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.

23.

1703133 - 740 Hafnarbraut 17 - endurnýjun á lóðarleigusamning

Lögð fram tillaga að lóðarblaði Hafnarbrautar 17 á Norðfirði vegna breytinga í samræmi við deiliskipulag.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður í samræmi við lóðarblað.

12.

1602108 - Ljósá - ofanflóðaframkvæmdir

Ofanflóðaframkvæmdir við Ljósá, fundargerð frá fyrsta verkfundi lögð fram til kynning

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00.