mobile navigation trigger mobile search trigger
03.01.2017

171. fundur hafnarstjórnar

Hafnarstjórn - 171. fundur

haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, 3. janúar 2017 og hófst hann kl. 16:00

 

 

Fundinn sátu:

Sævar Guðjónsson Formaður, Pálína Margeirsdóttir Varaformaður, Eydís Ásbjörnsdóttir Aðalmaður, Einar Már Sigurðarson Varamaður, Árni Þórhallur Helgason Varamaður og Steinþór Pétursson Embættismaður.

Fundargerð ritaði: Steinþór Pétursson

Dagskrá:

 

1.

1601011 - Fundargerðir CI á árinu 2016

Fundargerð stjórnar Cruise Iceland dags. 29. nóvember 2016. Lögð fram til kynningar.

2.

1601010 - Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2016

Fundargerð Hafnasambands Íslands nr. 390 dags. 7. desember 2016 lögð fram til kynningar.

3.

1612064 - Framlög til hafnaframkvæmda í fjárlögum 2017

Erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 12. desember 2016 þar sem kynntur er verulegur niðurskurður í frumvarpi til fjárlaga 2017 til hafnaframkvæmda, samanborið við ný samþykkta samgönguáætlun. Aðildarhafnir eru hvattar til að láta í sér heyra vegna málsins og nýta tækifæri sem gefast til að ræða þetta við þingmenn.

4.

1612018 - Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu Samskip Skaftafell 2. desember 2016

Erindi frá Samskipum hf. dags. 2. desember 2016 þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Capt. Sitnik Valery skipstjóra á MS Samskip Skaftafell. Hafnarstjórn staðfestir undanþágu fyrir Sitnik Valery skipstjóra á MS Samskip Skaftafell.

5.

1612141 - Öryggismyndavélar

Gerð grein fyrir skoðun á kostnaði við uppsetningu öryggismyndavéla á smábátahafnir í Fjarðabyggð. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vinna í málinu.

6.

1503131 - Norðfjörður - Fylling og stálþil á þróunarsvæði

Erindi frá Fjarðaneti dags. 2. des. 2016 þar sem spurt er um stauraröð innan við nýja kantinn til að styðja við skip sem þar leggja. Hafnarstjórn tekur ekki afstöðu til málsins að svo stöddu en felur framkvæmdastjóra að heyra í framkvæmdastjóra Fjarðanets vegna málsins.

7.

1612109 - Skoðun á möguleikum á aðstöðu í landi vegna laxeldis

Farið yfir málefni varðandi fyrirhugað laxeldi í Reyðarfirði og skoðun Laxa fiskeldis ehf á mögulegum staðsetningu fyrir starfsemi þeirra í landi. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vinna málið áfram.

8.

1210091 - Mjóeyrarhöfn 2.áfangi - stækkun

Fyrir liggur leyfi fyrir efnistöku vegna annars áfanga Mjóeyrarhafnar. Óskað er heimildar til að láta gera útboðsgögn vegna dælingar efnis í farg og fyllingu undir bryggjuna og að bjóða verkið út. Hafnarstjórn heimilar að hefja vinnu við útboðsgögn vegna dælingar og útboðs á henni. Framkvæmdastjóra einnig falið að sækja um framkvæmdaleyfi vegna framkvæmdar við 2. áfanga Mjóeyrarhafnar.

9.

1608111 - Efnistaka við Ljósá í Reyðarfirði

Hafnarsjóður Fjarðabyggðar hefur sent til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar beiðni um framkvæmdarleyfi skv. skipulagsslögum og á grunni stefnu í Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 til efnistöku úr sjó við Ljósá í Reyðarfirði. Hafnarstjóri kynnti fyrir hafnarstjórn beiðni um framkvæmdarleyfi til efnistöku við Ljósá. Hafnarstjórn staðfesti beiðnina.

10.

1505078 - 750 Bygging hafnarkants við frystigeymslu á Fáskrúðsfirði

Farið yfir stöðu mála varðandi framkvæmdir við Strandarbryggju.

11.

1612140 - Rafmagnstenglar á höfnum Fjarðabyggðar

Umræða um rafmagnsmál á höfnum Fjarðabyggðar, en mikil umræða hefur verið undanfarin misseri um að auka þurfi notkun skipa og báta á landrafmagni þegar þau liggja í landi frekar en að keyra ljósavélar við bryggju. Framkvæmdastjóra falið að fara yfir þessi mál.

 Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:45