mobile navigation trigger mobile search trigger
18.05.2017

223. fundur bæjarstjórnar

Bæjarstjórn - 223. fundur  

haldinn Sólbrekku í Mjóafirði,

18. maí 2017 og hófst hann kl. 16:00

Fundinn sátu Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar, Pálína Margeirsdóttir aðalmaður, Hulda Sigrún Guðmundsdóttir aðalmaður, Elvar Jónsson aðalmaður, Eydís Ásbjörnsdóttir aðalmaður, Valdimar O Hermannsson aðalmaður, Dýrunn Pála Skaftadóttir aðalmaður, Sævar Guðjónsson varamaður, Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir varamaður og Gunnar Jónsson embættismaður.

Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson

Dagskrá:

1.

1705002F - Bæjarráð - 520

Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson, Pálína Margeirsdóttir, Dýrunn Pála Skaptadóttir, Eydís Ásbjörnsdóttir,Sævar Guðjónsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 8. maí s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

1.1

1602039 - Almenningssamgöngur 2016

1.2

1610078 - Leigulönd í Fjarðabyggð

1.3

1606041 - Tillaga að fyrirkomulagi jarðgerðar

1.4

1705014 - 434.mál til umsagnar tillöga til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017 - 2021

1.5

1705017 - 435.mál til umsagnar frumvarp til laga um jafna meðferð á vinnumarkaði

1.6

1705025 - 375.mál til umsagnar frumvarp til laga um sveitarstjórnarlög (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn),

1.7

1705029 - 439.mál til umsagnar frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (innleiðing samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, stjórnsýsla og húsnæðismál),

1.8

1705030 - 438. mál til umsagnar frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir,

1.9

1705039 - Ársreikningur Búseta 2016

1.10

1705041 - Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar 2016

1.11

1705042 - Ársreikningur Rafveitu Reyðarfjarðar 2016

1.12

1705043 - Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns 2016

1.13

1702075 - Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2017

1.14

1702120 - Fullnaðarafgreiðslur embættismanna og prókúra 2017

1.15

- Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 175

1.16

- Íþrótta- og tómstundanefnd - 34

2.

1705007F - Bæjarráð - 521

Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 15. maí s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

2.1

1705109 - Rekstur málaflokka 2017 - TRÚNAÐARMÁL

2.2

1705105 - Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 4

2.3

1705044 - Framvirkur gjaldmiðilssamningur vegna samnings við Jan Del Nul

2.4

1703037 - Blómsturvellir 26-32 - sala (leikskólinn Sólvellir)

2.5

1607068 - Akstur til og frá athafnasvæðinu að Hrauni kl. 20:00

2.6

1705092 - Fyrirhuguð virðisaukaskattshækkun á ferðaþjónustuna og áhugi ráðherra á Austurlandi

2.7

1410115 - Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

2.8

1703119 - Útboð á viðhaldsmálum grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

2.9

1701123 - Kjarasamningur KÍ vegna FG - Vegvísir samstarfsnefndar SNS

2.10

1705097 - Málþing um skipulag haf- og strandsvæða 17. maí 2017

2.11

1705102 - Húsvarsla í Valhöll Eskifirði

2.12

1705057 - Aðalfundur SSA 2017

2.13

- Hafnarstjórn - 179

2.14

- Fræðslunefnd - 40

2.15

- Félagsmálanefnd - 94

3.

1704013F - Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 175

Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 2. maí s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

3.1

1704056 - 87.mál umsagnar tillögu til þingsályktunar um skipun starfshóps til að endurbæta löggjöf um vernd,velferð og veiðar villtra fugla og spendýra

3.2

1610078 - Leigulönd í Fjarðabyggð

3.3

1610080 - Umhverfismál 2017

3.4

1704108 - 735 Strandgata 77b - breyting á húsnæði

3.5

1611104 - Húsnæðisstefna Fjarðabyggðar - TRÚNAÐARMÁL

3.6

1606084 - 740 Urðarbotnar, Nes- og Bakkagil - ofanflóðavarnir

3.7

1207029 - Norðfjarðargöng - undirbúningur 2012, aðalmál

3.8

1601270 - Egilsbúð - viðhaldsmál

3.9

1703079 - Eignarsjóður viðhaldsmál 2017

3.10

1606041 - Tillaga að fyrirkomulagi jarðgerðar

4.

1705004F - Hafnarstjórn - 179

Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir, Sævar Guðjónsson.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 9. maí s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

4.1

1701008 - Fundargerðir Hafnasamband Íslands 2017

4.2

1705026 - Samráðshópur Fiskistofu og Hafnasambandsins

4.3

1705027 - Ársreikningur Hafnasambands Íslands 2016

4.4

1704115 - Uppsögn á starfi atvinnu- og þróunarstjóri

4.5

1703120 - Stefnumótun í fiskeldismálum

4.6

1702078 - Afmörkun hafnasvæða - réttindi og skyldur

4.7

1704134 - Kynnisferð til Noregs vegna fiskeldismála

4.8

1703139 - Efnistaka í sjó, undirbúningsvinna - Reyðarfjörður og Norðfjarðarflói

4.9

1704021 - Aðstöðuhús við Mjóeyrarhöfn

4.10

1704090 - Beiðni um styrk vegna flotbryggju við Sæbergsbryggju á Eskifirði

4.11

1704097 - Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Kvasov Vyacheslav skipstjóra á Marmindoro

4.12

1412034 - Norðfjörður - umhverfisfrágangur við smábátahöfn

4.13

1704105 - Styrkumsókn v/sjávarútvegsskólans 2017

5.

1705005F - Fræðslunefnd - 40

Til máls tóku: Pálína Margeirsdóttir, Elvar Jónsson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, Valdimar O Hermannsson.
Fundargerð fræðslunefndar frá 10. maí s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

5.1

1705053 - Fyrirkomulag á lokun og opnun leikskóla í tengslum við sumarlokun

5.2

1704098 - Ungt fólk - 8.-10.bekkur - vímuefnanotkun

5.3

1704093 - Úthlutun úr Endurmennturnarsjóði grunnskóla 2017

5.4

1701123 - Kjarasamningur KÍ vegna FG - Vegvísir samstarfsnefndar SNS

6.

1704011F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 34

Enginn tók til máls.
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 27. apríl s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

6.1

1704111 - Heimsókn í íþrótta- og tómstundamannivrki á Eskfirði

6.2

1704053 - Ungt fólk og lýðræði 2017

6.3

1604052 - Heilsueflandi samfélag - Fjarðabyggð

6.4

1702203 - Úthlutunarreglur íþróttastyrkja uppfærðar 2017

7.

1705003F - Félagsmálanefnd - 94

Til máls tók Valdimar O Hermannsson.
Fundargerð félagsmálanefndar frá 9. maí s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

7.1

1703205 - Húsnæðisáætlun fyrir allt Austurland

7.2

1611104 - Húsnæðisstefna Fjarðabyggðar - TRÚNAÐARMÁL

7.3

1705014 - 434.mál til umsagnar tillöga til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017-2021

7.4

1705020 - 436. mál til umsagnar frumvarp til laga um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna

7.5

1705029 - 439.mál til umsagnar frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (innleiðing samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, stjórnsýsla og húsnæðismál),

7.6

1705030 - 438. mál til umsagnar frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir

7.7

1704098 - Ungt fólk - 8.-10.bekkur - vímuefnanotkun

7.8

1406154 - Málefni flóttafólks

7.10

1606028 - Samningur um félagsstarf eldri borgara í Neskaupstað

8.

1602082 - Lögreglusamþykkt fyrir Fjarðabyggð - nr. 325/1999

Síðari umræða um drög að lögreglusamþykkt fyrir Fjarðabyggð.
Forseti bæjarstjórnar fylgdi drögum úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir lögreglusamþykkt fyrir Fjarðabyggð með 9 atkvæðum.

9.

1604018 - Endurskoðun á umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar 2016

Síðari umræða um endurskoðun á umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar.
Forseti bæjarstjórnar fylgdi drögum að endurskoðun á umferðarsamþykkt úr hlaði.
Til máls tóku: Sævar Guðjónsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson.
Bæjarstjórn samþykkir endurskoðaða umferðarsamþykkt með 9 atkvæðum.

10.

1606041 - Tillaga að fyrirkomulagi jarðgerðar

Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.
Framlögð drög að samningi við Íslenska Gámafélagið um jarðgerð og hirðu lífræns úrgangs. Í ágúst nk. verður bætt við brúnni tunnu og verður farið í sérstakt kynningarátak því tengdu. Jarðgerð fer fram á athafnasvæði verktaka á Reyðarfirði.
Til máls tóku: Sævar Guðjónsson, Jón Björn Hákonarson, Dýrunn Pála Skaftadóttir.
Bæjarstjórn samþykkir samning með 9 atkvæðum og felur bæjarstjóra undirritun hans.

11.

1702120 - Fullnaðarafgreiðslur embættismanna og prókúra 2017

Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglunum úr hlaði.
Framlagðar breytingar á reglum um fullnaðarafgreiðslur embættismanna.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir reglur með 9 atkvæðum.

12.

1705105 - Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 4

Forseti bæjarstjórnar fylgdi viðauka 4 úr hlaði.
Framlögð tillaga að viðauka 4 við fjárhagsáætlun ársins 2017 vegna breytinga í sorpmálum, endurbóta á Grunnskóla Fáksrúðsfjarðar og samþykkt á ársreikningi ársins 2016.
Lagt er til við bæjarstjórn að hún samþykkja samhliða viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2017 sem hér segir:

a) Kostnaður Sorpmiðstöðvarinnar á árinu 2017. Samtals er kostnaðaraukinn við að jarðgera og hirða lífrænan úrgang uppá um 11,3 m.kr. á árinu 2017 sem ekki var gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins 2017 í Sorpmiðstöð Fjarðabyggðar.

b) Endurbætur á Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar gera ráð fyrir að kostnaður nemi um 69 m.kr. Í fjárhagsáætlun Eignasjóðs fyrir árið 2017 er gert ráð fyrir að verja 55 m.kr. til fjárfestinga í Skólamiðstöðinni á Fáskrúðsfirði. Samtals er hér því um kostnaðarauka uppá um 14 m.kr. á árinu 2017 sem ekki var gert ráð fyrir í fjárfestingum fjárhagsáætlun ársins 2017 í Eignasjóði.

c) Samkvæmt samþykkt ársreiknings Fjarðabyggðar, Eignasjóðs, um fjárfestingar á árinu 2016 er ekki lengur til staðar fjárfestingarþörf í nýju hjúkrunarheimili á Eskifirði. Samtals er hér því um kostnaðarlækkun uppá um 60 m.kr. á árinu 2017.

Við þessa samþykkt mun því fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2017 breytast sem hér segir:

Rekstur Sorpmiðstöðvarinnar í málaflokki og deild 63-100 hækkar sem nemur kr. 11.300.000 fyrir árið 2017 og nemi í heildina 86.522.331. Rekstrarniðurstaða Soprmiðstöðvarinnar í málaflokki 63 fer úr afgangi að upphæð kr. 264.461 í halla að upphæð kr. 11.035.539.

Fjárfestingar Eignasjóðs í málaflokki og deild 32-010 hækka sem nemur kr. 14.000.000 fyrir árið 2017 vegna Skólamiðstöðvarinnar á Fáskrúðsfirði en lækka sem nemur áætlaðri fjárhæð til hjúkrunarheimilsins Hulduhlíðar og nema í heildina kr. 204.000.000.

Hér með er jafnframt lagt til að þessi kostnaðarauki verði fjármagnaður af eigin fé Sorpmiðstöðvar Fjarðabyggðar og eigin fé Eignasjóðs með tilheyrandi lækkun eða hækkun viðskiptastöðu þessara stofnunar og undirfyrirtækis við Aðalsjóð.

Handbært fé Aðalsjóðs mun lækka um kr. 25.300 þúsund krónur til samræmis við ofangreint og verða 108.838 þús. króna í árslok 2017. Engin breyting verður á áætlun um handbært fé vegna tilflutningi á fjárfestingu í hjúkrunarheimilinu Hulduhlíð, því upphæðin var greidd á árinu 2017, þó hún hafi verið kostnaðarfærð á árinu 2016.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum viðauka 4 við fjárhagsáætlun ársins 2017.

13.

1208097 - 755 - Deiliskipulag Söxu

Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagi úr hlaði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar til bæjarstjórnar tillögu að deiliskipulagi Söxu við Stöðvarfjörð til auglýsingar. Tillagan er sett fram á uppdrætti með greinargerð dags. 1. janúar 2017 og felur meðal annars í sér að gert er ráð fyrir áningastöðum, bílastæðum og göngustígum til að auka aðgengi og öryggi við sjávarhverinn Söxu. Tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að tillaga að deiliskipulagi fyrir Söxu við Stöðvarfjörð verði auglýst.

14.

1306082 - Launakjör kjörinna fulltrúa

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir með 9 atkvæðum að fella úr gildi frá 1. maí 2017 tímabundna ákvörðun um launakjör kjörinna fulltrúa sem ákveðin var á fundi bæjarstjórnar þann 1. desember 2016.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30