mobile navigation trigger mobile search trigger
29.06.2015

433. fundur bæjarráðs

Bæjarráð - 433. fundur  

haldinn Sólbrekku í Mjóafirði, mánudaginn 29. júní 2015

og hófst hann kl. 09:30

Fundinn sátu Jens Garðar Helgason formaður, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri og Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu er jafnframt ritaði fundargerð. 

Dagskrá:

 

1.

1506098 - Ársreikningar 2014 - Hulduhlíð

Ársreikningur Hulduhlíðar fyrir árið 2014 lagður fram. Bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar falið að skoða málefni hjúkrunarheimilanna og leggja fyrir bæjarráð í haust.

 

2.

1506104 - Ársreikningar 2014 - Uppsalir

Ársreikningur Uppsala fyrir árið 2014 lagður fram. Bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar falið að skoða málefni hjúkrunarheimilanna og leggja fyrir bæjarráð í haust.

 

3.

1506137 - Bæjarstjórnarfundir – skipulag

Framlagt til kynningar minnisblað um skipulag og framkvæmd bæjarstjórnarfunda sem haldnir yrðu víðsvegar um Fjarðabyggð. Bæjarráð mun skoða málið áfram og taka fyrir á fundi síðar í sumar.

 

4.

1501235 - Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2015

Fundargerð stjórnarfundar frá 5.júní 2015 lögð fram til kynningar.

 

5.

1411143 - Leiðbeiningar um uppbyggingu ljósleiðaraneta og ríkisaðstoðarreglur EES

Framlögð tillaga um gerð frumkostnaðaráætlun ljósleiðarakerfis í Fjarðabyggð. Bæjarráð samþykkir að fela bæjarritara að vinna málið áfram.

 

6.

1506131 - Rarik óskar eftir umsögn um lóð fyrir spennistöð við Naustahvamm

Vísað frá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd. Lagður fram tölvupóstur Finns Freys Magnússonar f.h. Rarik, dagsettur 12. júlí 2015, þar sem óskað er eftir lóð fyrir nýja spennistöð við Naustahvamm 60 á Norðfirði. Samþykki lóðarhafa Naustahvamms 60 liggur fyrir. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóð.

 

7.

1506101 - Samband íslenskra sveitarfélaga 70 ára 1945 - 2015

Hjálögð stutt samantekt um aðdraganda og stofnun sambandsins til upplýsingar og fróðleiks. Þessa dagana eru liðin rétt 70 ár síðan Samband íslenskra sveitarfélaga var stofnað á þingi 54 fulltrúa 38 sveitarfélaga, sem haldið var 11. til 13. júní 1945. Í því tilefni eru sveitarstjórnarmönnnum og starfsmönnum sveitarfélaga sendar árnaðaróskir á þessum tímamótum.

 

8.

1506110 - Samstarfssamningur sveitarfélaga á Austurlandi um menningarmál

Framlagður samstarfssamningur sveitarfélaga á Austurlandi um menningarmál en tilgangur samningsins er að beina styrkveitingum ríkis og sveitarfélaga á Austurlandi til mennignarstarfs í farveg til aða efla slíkt starf á Austurlandi og gera það sem sýnilegast. Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita hann.

 

9.

1506021 - Aðalfundur Norðurslóða - Viðskiptaráð 9. júní

Stjórn Norðurslóða - viðskiptaráðsins hefur ákveðið að bjóða Fjarðabyggð að tilnefna áheyrnarfulltrúa í stjórn ráðsins. Bæjarráð samþykkir að Ásta Kristín Sigurjónsdóttir verði áheyrnarfulltrúi í stjórn ráðsins.

 

10.

1506168 - Afsögn úr sveitarstjórn vegna brottflutnings

Lögð fram og samþykkt afsögn Eiðs Ragnarssonar úr bæjarstjórn vegan brottflutnings úr sveitarfélaginu. Eiður þakkar samstarf á liðnum árum. Bæjarráð þakkar Eiði samstarfið á liðnum árum og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.

 

11.

1411075 - Fjarðabyggð til framtíðar

Bæjarráð fól bæjarstjóra á fundi nýlega að kanna kosti og galla útvistunar á starfsemi skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði. Bæjarstjóri fór yfir málið. Bæjarráð samþykkir að unnið verið að málinu áfram og það tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.

 

12.

1203023 - Norðfjarðarflugvöllur viðhald og uppbygging

Bæjarráð samþykkir að veita allt að 1 milljón á móti framlagi frá Isavia, af liðnum óráðstafað, til undirbúnings gerðar kostnaðaráætlunar og vinnslu gagna, í tengslum við framkvæmdir á flugvellinum.

 

13.

1406123 - Nefndaskipan Framsóknarflokks 2014 - 2018

Hulda Sigrún Guðmundsdóttir tekur sæti bæjarfulltrúa í stað Eiðs Ragnarssonar. Ásmundur Páll Hjaltason tekur sæti í félagsmálanefnd í stað Jón Björns Hákonarsonar og Hulda Sigrún Guðmundsdóttir verður formaður félagsmálanefndar í stað Jóns Björns. Jón Björn verður formaður eigna- skipulags- og umhverfisnefndar. Pálína Margeirsdóttir tekur sæti í hafnarstjórn og verður varaformaður stjórnar.

 

14.

1406125 - Nefndaskipan Fjarðalista 2014 - 2018

Almar Blær Sigurjónsson tekur sæti varamanns í íþrótta- og tómstundanefnd í stað Óskars Ágústs Þorsteinssonar.

 

15.

1501273 - Fundargerðir barnaverndarnefndar 2015

Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 54 frá 15. júní 2015, lögð fram og samþykkt í umboði bæjarstjórnar.

 

16.

1501132 - Fundargerðir félagsmálanefndar 2015

Fundargerð félagsmálanefndar, nr.71 frá 15.júní 2015, lögð fram og samþykkt í umboði bæjarstjórnar.

 

17.

1506011F - Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 121

Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 58 frá 21.maí 2014, lögð fram og samþykkt í umboði bæjarstjórnar.

Í lok fundar var haldinn fundur með íbúum Mjóafjarðar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:30.