mobile navigation trigger mobile search trigger
23.05.2016

475. fundur bæjarráðs

Bæjarráð - 475. fundur  

haldinn í Molanum fundarherbergi 3, mánudaginn 23. maí 2016

og hófst hann kl. 08:30

Fundinn sátu Jón Björn Hákonarson formaður, Eydís Ásbjörnsdóttir, Kristín Gestsdóttir, Gunnar Jónsson bæjarritari og Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri.

Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Dagskrá:

1.

1605024 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017

Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Lögð fram drög að reglum um gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017 ásamt minnisblaði fjármálastjóra um áætlunargerðina.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti reglurnar með breytingum sem lagðar eru til á fundinum og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

 

2.

1605102 - Endurskoðun samnings um útvistun rekstrar Skíðasvæðisins í Oddsskarði

Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Farið yfir mögulegar fjárfestingar vegna Skíðasvæðisins í Oddskarði m.t.t. endurskoðunar á rekstrar- og þjónustusamningi við rekstraraðila. Framlagt minnisblað fjármálastjóra og íþrótta- og tómstundafulltrúa.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hefja viðræður við rekstraraðila um endurskoðun samnings.

 

3.

1106083 - Endurskoðun starfsmannastefnu Fjarðabyggðar

Þennan lið dagskrár sat forstöðumaður stjórnsýslu.
Drög að mannauðsstefnu Fjarðabyggðar og drög að reglum um kjör starfsmanna lögð fram sem vinnuskjöl.
Bæjarráð fór yfir gögnin og vísar þeim til áframhaldandi vinnu í bæjarráði.

 

4.

1503148 - Aðstöðuhús við smábátahafnir

Smíði aðstöðuhúss á Stöðvarfirði. Fyrir fundi hafnarstjórnar þann 19. maí s.l. lágu drög að verksamningi við Agat ehf. um smíði hússins. Hafnarstjórn samþykkti samninginn og felur framkvæmdastjóra að ganga frá honum. Samþykktinni vísað til staðfestingar í bæjarráði.
Bæjarráð staðfestir verksamninginn.

 

5.

1605120 - Vegna yfirvofandi alvarlegs ástands í læknamönnun á næstu vikum og mánuðum

Fram lagt bréf frá Heilbrigðisstofnun Austurlands vegna læknamönnunar stofnunarinnar.
Bæjarráð tekur undir áhyggjur stofnunarinnar og óskar eftir fundi með framkvæmdastjóra og lækningaforstjóra stofnunarinnar.

 

6.

1604140 - Áskorun til bæjarstjórnar vegna ofanflóðavarna í Neskaupstað

Fram lagt bréf frá Dagfinni Smára og 9 öðrum einstaklingum vegna ofanflóðavarna í Neskaupstað.
Bæjarráð vísar til bókunar sinnar frá 2. maí s.l. Þá vill bæjarráð árétta að bæjarstjórn Fjarðabyggðar mun hafa öryggi íbúa sinna í fyrirrúmi hér eftir sem hingað til við gerð ofanflóðamannvirkja í sveitarfélaginu. Ofanflóðamat og frumathugun liggja fyrir og munu hönnunargögn vegna varnarmannvirkjanna taka tillit til umhverfis og aðstæðna. íbúar eru hvattir til að koma með athugasemdir í lögboðnu ferli sem er opið og vel kynnt.

 

7.

1603122 - Fundargerðir barnaverndarnefndar 2016

Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 63 frá 18.maí 2016, lögð fram til kynningar.

 

8.

1605006F - Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 145

Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 17. maí lögð fram til kynningar.

 

9.

1605005F - Hafnarstjórn - 163

Fundargerð hafnarstjórnar frá 19. maí lögð fram til kynningar.

 

Bæjarráð samþykkir að haldinn verði íbúafundur á Stöðvarfirði 1. júní n.k. kl. 20:00 í grunnskólanum á Stöðvarfirði. 

Jafnframt samþykkir bæjarráð að íbúafundur verði haldinn í Mjóafirði í tengslum við bæjarstjórnarfund sem haldinn verður 26. maí n.k.  Fundurinn verður haldinn í Sólbrekku og hefst um kl. 17:00.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:45