mobile navigation trigger mobile search trigger
22.08.2016

485. fundur bæjarráðs

Bæjarráð - 485. fundur  

haldinn í Egilsbraut 1, Neskaupstað, mánudaginn 22. ágúst 2016

og hófst hann kl. 08:30

Fundinn sátu Jón Björn Hákonarson varaformaður, Eydís Ásbjörnsdóttir, Valdimar O. Hermannsson, Gunnar Jónsson bæjarritari og Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri.

Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Dagskrá:

1.

1106083 - Endurskoðun starfsmannastefnu Fjarðabyggðar

Umræður um endurskoðun starfsmannastefnu Fjarðabyggðar og reglur er unnar hafa verið í tengslum við stefnuna.
Vísað til áframhaldandi vinnu.

 

2.

1607068 - Ósk um greiðslu aksturspeninga til og frá vinnu

Bréf þriggja starfsmanna Slökkviliðs Fjarðabyggðar þar sem farið er fram á greiðslur vegna aksturs til og frá vinnu.
Vísað til bæjarritara til skoðunar og verður tekið fyrir í bæjarráði að nýju.

 

3.

1201079 - Tilkynning um fyrirhugaða 4.000 tonna laxeldisstöð Laxar fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði

Á fundi bæjarráðs þann 11. júlí sl. var framlögð beiðni Skipulagsstofnunar um umsögn vegna matsáætlunar fyrir fyrirhugaða 4.000 tonna ársframleiðslu á laxi í eldisstöð Laxa fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði.
Á fundinum var henni vísað til skipulags- og byggingarfulltrúa og framkvæmdastjóra hafna.
Fyrir fundinum liggur umsögn framangreindra aðila.
Bæjarráð samþykkir umsögninga og vísar henni til kynningar í hafnarstjórn og eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

 

4.

1410115 - Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

Samningar um klæðningu Norðafjarðarflugvallar liggja fyrir til undirritunar.
Um er að ræða samning heimaaðila, Fjarðabyggðar, Samvinnufélags Útgerðarmanna í Neskaupstað og Síldvarvinnslunar um framlög heimaaðila til framkvæmdarinnar. Samningur Innanríkisráðuneytisins og Fjarðabyggðar um framlög til klæðningar vallarins. Verksamningur Isavia og Héraðsverks um framkvæmdina.
Ólöf Nordal innanríkisráðherra undirritaði samning við Fjarðabyggð um framkvæmdina á Norðfjarðarflugvelli í flugstöðinni.

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi bókun.

Undirritaður verður í dag, á Norðfjarðarflugvelli, samningur á milli sveitarfélagsins Fjarðabyggðar og Innanríkisráðuneytisins um fjármögnun á framkvæmdum á Norðfjarðarflugvelli, sem gera munu flugvellinum kleift að sinna betur öryggishlutverki sínu, sem hluti af samgöngukerfi landsins. Bæjarráð vill koma á framfæri sérstöku þakklæti til Samvinnufélags Útgerðamanna í Neskaupstað og Síldarvinnslunnar hf. vegna aðkomu þessara aðila að fjármögnun verkefnisins með sveitarfélaginu. Þá vill bæjarráð þakka aðkomu Innanríkisráðuneytisins og alþingis að verkefninu, sem tryggir rúman helming fjármagns til framkvæmdarinnar. Bæjarráð áréttar þó, að þátttaka sveitarfélagsins og milliganga um fjármögnun verksins, sem er að öllu leyti á forræði ríkisins, er ekki til eftirbreytni. Ríkisvaldinu ber að tryggja þá innviði samfélagsins sem snúa að öryggi- og heilbrigðismálum landsmanna og skýtur skökku við að sveitarfélögum og fyrirtækjum sé ætluð aðild að slíkum verkefnum.
Þá mótmælir bæjarráð Fjarðabyggðar harðlega þeirri fyrirætlun borgarstjórnar Reykjavíkur að loka NA/SV neyðarbraut Reykjavíkurflugvallar og lýsir jafnframt vonbrigðum með aðgerðarleysi ríkisvaldsins, en óumdeilt er, að þessi ákvörðun Reykjavikurborgar skerðir þjónustu við íbúa þeirra sveitarfélaga, sem treysta verða á sjúkraflug til höfuðborgarinnar í neyðartilvikum. Það hlýtur jafnframt að teljast undrunarefni, að á sama tíma og sveitarfélag á borð við Fjarðabyggð leitar allra leiða til að tryggja aðstöðu fyrir sjúkraflug, kýs sveitarfélagið Reykjavíkurborg að loka mikilvægri öryggisflugbraut fyrir sjúkraflug á Reykjavíkurflugvelli. Réttur sveitarfélaga er óumdeildur þegar kemur að skipulagsmálum. Borgarstjórn Reykjavíkur má þó vera ljóst, að sjúkraflug liggur til höfuðborgarinnar, þar sem stjórnvöld hafa byggt upp miðlæga sjúkraþjónustu landsins og hátæknisjúkrahús.
Bæjarráð telur brýnt að sveitarfélög víki sér ekki undan því að leita lausna í almannaþágu, sem nýst geta fleirum en hverju og einu þeirra. Ríkisstjórn landsins studdi enn fremur á sínum tíma ákvörðun borgaryfirvalda um lokun brautarinnar og hlýtur af þeim sökum að axla ábyrgð á afleiðingum þess með mótvægisaðgerðum. Fjarðabyggð leggur þunga áherslu á að Reykjavíkurborg, Samband íslenskra sveitarfélaga og ríkisvaldið komist að ásættanlegri niðurstöðu í þessu brýna almannaöryggismáli."

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00.