mobile navigation trigger mobile search trigger
19.06.2017

525. fundur bæjarráðs

Bæjarráð - 525. fundur  

haldinn í Molanum fundarherbergi 3, 19. júní 2017 og hófst hann kl. 09:00

Fundinn sátu Jens Garðar Helgason Formaður, Jón Björn Hákonarson Varaformaður, Esther Ösp Gunnarsdóttir Varamaður, Gunnlaugur Sverrisson Embættismaður og Páll Björgvin Guðmundsson Bæjarstjóri.  Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Dagskrá: 

1.

1706055 - Fasteignamat 2018

Framlögð til kynningar samantekt fjármálastjóra um breytingar á fasteignamati í Fjarðabyggð á milli áranna 2017 og 2018. Vísað til kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.

2.

1706057 - Umsókn um lán frá Ofanflóðasjóði 2017

Fjármálastjóri leggur fram drög að umsókn til Ofanflóðasjóðs vegna umsóknar um lán vegna ofanflóðaframkvæmda á árinu 2016. Lántakan, ef af verður, er í samræmi við fjárhagsáætlun ársins 2017. Bæjarráð samþykkir umsóknina og felur fjármálastjóra afgreiðslu málsins.

3.

1510071 - Kaup sveitarfélaga á fasteignum í eigu Íbúðalánasjóðs

Íbúðalánasjóður leitar til sveitarfélaga á landinu með það í huga að bjóða til viðræðna um möguleg kaup á fasteignum í eigu sjóðsins. Lagt fram til kynningar og vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar. Bæjarstjóra falið að ræða við Íbúalánasjóð um sölu eignanna á almennum markaði.

4.

1705231 - Húsnæðisáætlun sveitarfélaga

Fundargerð fundar um gerð sameiginlegrar húsnæðisáætlunar fyrir Austurland .Samþykkt hefur verið að stofna starfshóp á vegum SSA og er bæjarstjóri fulltrúi bæjarins í hópnum. Fyrsti fundur verður haldinn þriðjudaginn 20.júní kl. 11.30 á Egilsstöðum.

5.

1705166 - Ferða- og markaðsmál

Lagt fram og rætt minnisblað upplýsinga- og kynningarfulltrúa og atvinnu- og þróunarstjóra um þjónustu Fjarðabyggðar og ferðaþjónustuaðila gagnvart ferðamönnum sem sækja Fjarðabyggð heim, m.a. þjónustu á tjaldsvæðum, opnunartíma stofnana og safna, afþreyingu o.fl. Minnisblaði vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, menningar- og safnanefndar og íþrótta- og tómstundanefndar.

Gestir: Upplýsingafulltrúi og atvinnu- og þróunarstjóri - 09:40.

6.

1703120 - Stefnumótun í fiskeldismálum

Minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra um stefnu Fjarðabyggðar í fiskeldismálum ásamt skjali með stefnuþáttum. Bæjarráð samþykkir efni minnisblaðsins. Fjármögnun, allt að 5 milljónir, vísað til fjármálastjóra til viðaukagerðar sem lagður verði fram á fundi bæjarstjórnar 22.júní. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

Gestir – Atvinnu- og þróunarstjóri – 10:31

7.

1705137 - 408.mál til laga um skipulag haf- og strandsvæða,

Lögð fram drög að umsögn bæjarstjóra og umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30.maí, um frumvarp um skipulag haf- og strandsvæða. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá umsögn á grundvelli draga og leggja fyrir bæjarstjórn.

Gestir

Atvinnu- og þróunarstjóri - 10:50

8.

1610097 - Samstarf í menntamálum

Lögð fram gögn bæjarstjóra er varða uppbyggingu og samstarf í menntamálum auk draga að yfirlýsingu um samstarf milli Fjarðabyggðar og nokkurra fyrirtækja um nám á háskólastigi. Bæjarráð samþykkir samtarf og fjármögnun, allt að 4 milljónir, verði tekin af liðnum óráðstafað. Vísað til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn og jafnframt til kynningar í fræðslunefnd.

Gestir

Atvinnu- og þróunarstjóri - 10:57

9.

1706005F - Fræðslunefnd - 42

Fundargerð fræðslunefndar, nr. 42 frá 14.júní 2017, lögð fram til kynningar.

9.1

1705199 - Fundaáætlun fræðslunefndar haust 2017

9.2

1311034 - Niðurstöður úr Skólavoginni

9.3

1611044 - Viðbyggingaþörf við leikskóla á Eskifirði og Reyðarfirði

9.4

1705203 - Áskorun til fræðsluyfirvalda vegna nemenda með skilgreinda fötlun

9.5

1705239 - Tölvuver grunnskólanna í Fjarðabyggð

9.6

1705194 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018

9.7

1612093 - Útboð á skólamáltíðum í grunnskólum 2017

Bæjarráð samþykkir, í ljósi niðurstöðu útboðs á skólamáltíðum, að verð á skólamáltíð fari úr 435 kr. í 450 kr. frá 1.ágúst nk.

10.

1706003F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 36

Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 36 frá 8.júní 2017, lögð fram til kynningar.

10.1

1706017 - Heimsókn í íþrótta- og tómstundamannvirki á Reyðarfirði

10.2

1705237 - Ástandsskýrsla - Íþróttahús Eskifjarðar

10.3

1702203 - Úthlutunarreglur íþróttastyrkja uppfærðar 2017

10.4

1706018 - Starfs- og fjárhagsáætlun 2018 íþrótta- og tómstundanefnd

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:40.