mobile navigation trigger mobile search trigger
18.12.2017

546. fundur bæjarráðs

Bæjarráð - 546. fundur  

haldinn í Molanum fundarherbergi 3, 18. desember 2017 og hófst hann kl. 10:30

Fundinn sátu Jens Garðar Helgason formaður, Jón Björn Hákonarson varaformaður, Eydís Ásbjörnsdóttir aðalmaður, Gunnar Jónsson embættismaður og Gunnlaugur Sverrisson embættismaður er jafnframt ritaði fundargerð. 

Dagskrá: 

1.

1711168 - Fjárhagsáætlun HSA fyrir árið 2018

Þennan lið fundarins sat Guðjón Hauksson forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Rætt um alvarlega stöðu innan Heilbrigðisstofnunar Austurlands, en engin ný framlög til stofnunarinnar er að finna í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar 2018.
Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir harðlega þeirri alvarlegu stöðu sem er að koma upp í heilbrigðismálum á landsbyggðinni. Ljóst er að ef ekki kemur til aukið framlag til Heilbrigðisstofnunar Austurlands þarf að fara í mjög sársaukafullar og alvarlegar aðgerðir til að ná sparnaði til að standast fjárlagaframma árins 2018. Við þetta getur bæjarráð Fjarðabyggðar ekki unað og skorar á stjórnvöld að bæta úr þessu án tafar.

2.

1708129 - Fræðslumál starfsmanna grunn- og leikskóla

Framlagt minnisblað starfshóps um fræðslumál á fjölskyldusviði þar sem lagðar eru fram tillögur í sex liðum til að efla fræðslu starfsmanna. Bæjarráð líst vel á tillögur í minnisblaði og leggur til að reglur um námsstyrki verði endurskoðar og lagðar fyrir bæjarráð að nýju ásamt drögum að samkomulagi um umbun milli Fjarðabyggðar og starfsmanna. Bæjarráð vísar d.lið í minnisblaði til umsagnar hjá framkvæmdastjórn Skólaskrifstofu Austurlands. Vísað til kynningar í fræðslunefnd. Tekið fyrir að nýju í bæjarráði þegar niðurstaða liggur fyrir.

3.

1712056 - Aukafjárveiting til bókasafna í Fjarðabyggð

Framlagt bréf frá forstöðumönnum bókasafna í Fjarðabyggð um fjárveitingu til bókakaupa á árinu 2017. Óskað er eftir aukafjárveitingu m.a. á grunni átaks í að efla læsi nemenda. Bæjarráð samþykkir 227.000 kr. aukaframlag til bókasafnanna á árinu 2017, sem takist af liðnum óráðstafað. Bæjarritara og forstöðumanni Safnastofnunar falið að fara yfir hvort framlag á árinu 2018, rúmist innan fjárhagsáætlunar ársins.

4.

1712003 - Í skugga valdsins

Frá fundi bæjarstjórnar 14. desember 2017.
Eydís Ásbjörnsdóttir lagði fram sameiginlega bókun bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar leggur fram tillögu um aðgerðir til að bregðast við kynbundinni og kynferðislegri áreitni og kynbundnu ofbeldi í starfsumhverfi Fjarðabyggðar #metoo #ískuggavaldsins.
Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarráði að stofna starfshóp sem í munu sitja kjörnir fulltrúar og starfsmenn Fjarðabyggðar, starfshópurinn gerir tillögur að aðgerðum til að bregðast við kynbundinni og kynferðislegri áreitni og kynbundnu ofbeldi í starfsumhverfi Fjarðabyggðar. Þá er lagt til að umfang vandans verði metið. Í framhaldinu verði farið yfir jafnréttisáætlun, mannauðsstefnu Fjarðabyggðar, siðareglur kjörinna fulltrúa og starfsmanna sveitarfélagsins. Þá verði samþykkt að yfirfara stefnumörkun, verklagsreglur og viðbragðsáætlun og að gerðar verði tillögur til úrbóta sé þörf. Þá hefur bæjarráð þegar samþykkt tillögu bæjarstjóra um jafnrétti og kynjafræðslu þvert á stofnanir og er hún þörf viðbót í vinnu þessari. Samráð skal haft við stjórnendur Fjarðabyggðar, hagsmunaaðila, fyrirtæki og stofnanir sveitarfélagsins sem kunna að skipta máli. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili til bæjarstjórnar tillögu að aðgerðar-, tíma-, og kostnaðaráætlun fyrir 1. mars 2018. Bæjarráð samþykkir að skipa fimm manna starfshóp sem í sitja Jens Garðar Helgason formaður bæjarráðs og Eydís Ásbjörnsdóttir, f.h. bæjarráðs, Hulda Sigrún Guðmundsdóttir formaður félagsmálanefndar, Gunnar Jónsson bæjarritari og Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir félagsmálastjóri. Jens Garðar Helgason verður formaður nefndarinnar.

5.

1702018 - Búðavegur 35 - stefna

Dómur Héraðsdóms Austurlands vegna stefnu hluta eiganda Búðavegar 35 lagður fram til kynningar. Fjarðabyggð var sýknað af kröfu stefnanda.

6.

1712058 - Skammtímafjármögnun Fjarðabyggðar 2018

Heimild til yfirdráttar að upphæð 200 milljónir kr. hjá Íslandsbanka rennur út þann 4. febrúar 2018. Lagt er til að bæjarráð heimili að framlengja yfirdráttarheimild hjá Íslandsbanka á greiðslureikningi Fjarðabyggðar fyrir allt að 300 milljónir króna, í allt að eitt ár frá og með 5.febrúar 2018. Bæjarráð samþykkir heimild, fyrir sitt leyti, en vísar málinu til staðfestingar bæjarstjórnar.

7.

1712061 - Breytingar á þjóðvegum með tilkomu Norðfjarðarganga og hjáleiðin á Reyðarfirði

Bréf Vegagerðarinnar frá 15.desember 2017, en bréfið er sent í framhaldi af fundi sem haldinn var 4.desmber. Bréfið varðar breytingu á vetrarþjónustu í Fjarðabyggð vegna tilkomu Norðfjarðarganga og fjallar einnig um hjáleið á Reyðarfirði. Vegagerðin óskar eftir fundi í tengslum við efni bréfsins. Vísað til kynningar hjá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd og til nánari skoðunar hjá sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs. Tekið fyrir í bæjarráði að nýju að því loknu.

8.

1712063 - Eldvarnarbandalagið 2018

Framlögð greinargerð Slökkviliðsstjóra og verkefnastjóra Eldvarnarbandalangsins um framkvæmd samstarfs Eldvarnarbandalagsins og Fjarðabyggðar. Vilji er til að halda áfram með verkefnið í stofnunum Fjarðabyggðar. Bæjarráð felur slökkviliðsstjóra að útfæra eftirfylgni verkefnisins.

9.

1702040 - Fjárlög 2017 - Ofanflóðavarnir

Lögð fram til kynningar bókun bæjarráðs Seyðisfjarðarkaupstaðar er varðar drög að frumvarpi um breytingu á lögum nr. 49/1997 um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum. Bæjarráð Fjarðabyggðar tekur undir bókun bæjarráðs Seyðisfjarðarkaupstaðar varðandi fjármögnun ofanflóðaframkvæmda og að tekjustofninn sé skýrt afmarkaður til þeirra verkefna sem hann var stofnaður til.

10.

1605143 - Framtíð tjaldsvæðis á Eskifirði

Svanhvít Yngvadóttir sem verið hefur formaður hóps um framtíð tjaldsvæðisins á Eskifirði, hyggur á flutninga úr sveitarfélaginu og mun Jens Garðar Helgason taka sæti hennar og verða formaður hópsins.

11.

1712003F - Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 193

Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, frá 11. janúar 2017, lögð fram til kynningar.

11.1

1712042 - Raforkukaup Rafveitu Reyðarfjarðar 2018

11.2

1402076 - Geymslusvæði og stöðuleyfi fyrir gáma og lausafé í Fjarðabyggð

11.3

1712013 - 735 Lambeyrarbraut 3 - breyting á útliti húss

11.4

1711173 - 740 Strandgata 44 - umsókn um byggingarleyfi

11.5

1711028 - 730 - Mánagata 11 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

11.6

1712029 - 730 Hjallavegur 8 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

11.7

1611104 - Húsnæðisstefna Fjarðabyggðar

11.8

1712028 - Vernd og endurheimt votlendis

12.

1712004F - Fræðslunefnd - 49

Framlögð fundargerð fræðslunefndar frá 13. desember 2017, lögð fram til kynningar.

12.1

1711167 - Sumarleyfi leikskólanna í Fjarðabyggð 2018

12.2

1711014 - Ytra mat á leikskólum 2018

12.3

1712049 - Breyting á skóladagatali leikksólanna Dalborgar og Lyngholts

12.4

1711166 - Menntun fyrir alla á Íslandi

12.5

1711033 - Vinna við forvarnir fyrir árið 2018

12.6

1711030 - Skólanámskrár og starfsáætlanir

12.7

1710134 - Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 2017

12.8

1710066 - Málefni nemenda

13.

1712002F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 43

Framlögð fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, frá 14. desember 2017, lögð fram til kynningar.

13.1

1710124 - Skýrsla um ferðasumarið 2017

13.2

1711178 - Sundlaug Eskifjarðar - úttekt í aðgengismálum

13.3

1711032 - Vinna við forvarnir fyrir árið 2018

13.4

1712032 - Íþróttamaður Fjarðabyggðar 2017

Málefni lögreglunnar í Fjarðabyggð

Bæjarráð Fjarðabyggðar tekur undir með lögreglustjóranum á Austurlandi um nauðsyn endurnýjunar húsnæðis lögreglunnar í Neskaupstað. Bæjarráð leggur á það ríka áherslu að starfsemi lögreglunnar í Fjarðabyggð verði áfram með sama hætti og kveðið er á um í reglugerð og áætlunum lögreglustjórans á Austurlandi. Jafnframt óskar bæjarráð eftir þvi að lögreglustjórinn á Austurlandi komi á fund bæjarráðs í upphafi nýs árs til skrafs og ráðagerða.   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00.