mobile navigation trigger mobile search trigger
09.11.2016

89. fundur félagsmálanefndar

haldinn í Molanum fundarherbergi 1 og 2, 8. nóvember 2016

og hófst hann kl. 16:00

 

Fundinn sátu:

Hulda Sigrún Guðmundsdóttir Formaður, Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir Aðalmaður, Borghildur Hlíf Stefánsdóttir Aðalmaður, Ásmundur Páll Hjaltason Aðalmaður, Valdimar O Hermannsson Varaformaður og Þóroddur Helgason Embættismaður.

 

Fundargerð ritaði: Þóroddur Helgason

 

Dagskrá:

 

1.

1609135 - Framkvæmdaráð hjúkrunarheimila í Fjarðabyggð

Fyrir liggja drög að erindisbréfi fyrir hjúkrunarheimilin í Fjarðabyggð. Félagsmálanefnd samþykkir fyrirliggjandi drög og vísar þeim til bæjarráðs til staðfestingar.

Gestir

Gréta Garðarsdóttir forstöðumaður hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð

2.

1608104 - Málefni íbúa í Hulduhlíð - Trúnaðarmál

Akstursþjónusta - Trúnaðarmál.

Gestir

Gréta Garðarsdóttir forstöðumaður hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð

3.

1611031 - Rammasamningur um rekstur hjúkrunarheimila

Fyrir liggur rammasamningur um rekstur hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð. Gréta Garðarsdóttir fór yfir hvaða áhrif samningurinn hefði í för með sér og gerði grein fyrir kröfulýsingu fyrir hjúkrunar- og dvalarrými. Helstu breytingar eru að umgjörðin verður skýrari, m.a. hvað varðar stefnumörkun, skráningar og utanumhald. Félagsmálanefnd felur forstöðumanni hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð að skrifa undir rammasamninginn fyrir hönd hjúkrunarheimilanna.

Gestir

Gréta Garðarsdóttir forstöðumaður hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð

4.

1609125 - Málefni Breiðabliks

Lögð var fram til kynningar skýrsla Vinnueftirlits ríkisins vegna eftirlits þeirra á sameiginlegri aðstöðu íbúa í Breiðabliki og farið yfir viðbrögð sveitarfélagsins.

5.

1610001 - Öldungaráð

Fyrir liggur tillaga Fjarðalistans um stofnun öldungarráðs í Fjarðabyggð. Bæjarráð vísaði tillögunni til umsagnar félagsmálanefndar 3. október 2016. Félagsmálanefnd felur starfsmönnum fjölskyldusviðs að vinna drög að samþykktum fyrir öldungarráð sem taki mið af tillögu Fjarðalistans, samþykktum ungmennaráðs og fyrirmyndum frá öðrum sveitarfélögum.

6.

1610153 - Styrkbeiðni vegna Stígamóta 2017

Borist hefur bréf frá samtökunum Stígamótum þar sem greint er frá starfsemi samtakanna á landsbyggðinni og vaxandi fjölda beiðna um þjónustu Stígamóta. Í bréfinu er einnig skorað á sveitarstjórnarfólk að forgangsraða í þágu velferðar íbúanna og taka þátt í starfinu með Stígamótum. Félagsmálanefnd metur mikils framlag Stígamóta til velferðarmála. Félagsmálanefnd hefur á undanförnum árum veitt styrk til samtakanna og í fyrirliggjandi fjárhagsáætlun fyrir 2017 er gert ráð fyrir að styrkur til samtakanna verði aukinn.

7.

1608100 - Áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum

Framlagt minnisblað fjármálastjóra um áhrif nýrra laga um húsnæðismál á Fjarðabyggð. Í minnisblaðinu er m.a. lagt til að unnar verði reglur um úthlutun húsnæðisbóta til tekjulágra og námsmanna 15-17 ára með hliðsjón af leiðbeiningum frá velferðarráðuneytinu. Ný lög taka gildi 1. janúar 2017 og þá þurfa að liggja fyrir samþykktar reglur. Fjarðabyggð er með reglur um sérstakar húsnæðisbætur og þær voru yfirfarnar fyrr á árinu. Sjá nánar undir dagskrárlið 10, máli 1610178, um reglur sveitarfélaga um húsnæðismál og stöðuna í vinnu við leiðbeiningar velferðarráðuneytisins.

8.

1605024 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017

Fyrir liggur ákvörðun bæjarráðs um breytingu á fjárhagsramma fyrir 2017. Hagræðingarkrafan er samtals upp á rúmar 3 milljónir í málaflokki 02 félagsþjónusta. Nefndin samþykkti að hagræðingunni yrði mætt með lækkun á launakostnaði, lækkun ferðakostnaðar og lækkun annars kostnaðar.

9.

1610199 - Undanþágur frá íbúafjölda þjónustusvæða í málaflokki fatlaðs fólks

Fyrir liggur bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga til Velferðarráðuneytisins þar sem fram kemur vilji Sambandsins að veittar verði undanþágur frá íbúafjölda þjónustusvæða í málaflokki fatlaðs fólks. Nú er miðað við 8000 íbúa. Bréfið er lagt fram til kynningar. Félagssmálanefnd lýsir ánægju með það fyrirkomulag sem er til staðar á Austurlandi þar sem sveitarfélögin á Austurlandi mynda eitt þjónustusvæði.

10.

1610178 - Reglur sveitarfélaga um húsnæðismál og staðan í vinnu við leiðbeiningar velferðarráðuneytisins

Fyrir liggur bréf til framkvæmdastjóra sveitarfélaga og stjórnenda í félagsþjónustu um reglur sveitarfélaga um húsnæðismál og stöðuna í vinnu við leiðbeiningar velferðarráðuneytisins. Fjarðabyggð er með reglur um sérstakar húsaleigubætur sem voru yfirfarnar á árinu. Fylgst verður áfram með áhrifum nýrra húsnæðislöggjafar og þá metið hvort gera þurfi frekari breytingar á sérstökum húsaleigubótum.

11.

1610053 - Gjaldskrá félagslegrar heimþjónustu 2017

Fyrir liggur tillaga að gjaldskrá fyrir félagslega heimaþjónustu. Nokkur hækkun er á heimsendum mat og heimaþjónustu, en eftir sem áður verður Fjarðabyggð með gjaldskrá sem er svipuð og lægst gerist hjá viðmiðunarsveitarfélögum. Félagsmálanefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu og vísar henni áfram til bæjarráðs.

12.

1610028 - Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 2017

Fyrir liggur tillaga að gjaldskrá fyrir þjónustuíbúðir í Breiðablik. Félagsmálanefnd samþykkir tillöguna og vísar henni áfram til bæjarráðs.

13.

1610027 - Gjaldskrá ferðaþjónustu 2017

Fyrir liggur gjaldskrá í ferðaþjónustu fyrir árið 2017. Félagsmálanefnd samþykkir tillöguna og vísar henni áfram til bæjarráðs.

14.

1610025 - Gjaldskrá Fjölskyldusviðs 2017 vegna stuðningsfjölskyldna við fötluð börn

Fyrir liggur gjaldskrá Fjölskyldusviðs 2017 vegna stuðningsfjölskyldna við fötluð börn. Umræðu frestað til næsta fundar.

15.

1009112 - Reglur um fjárhagsaðstoð

Félagsmálanefnd fór yfir reglur Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð. Vísað til skoðunar hjá starfsmönnum fjölskyldusviðs og umræðu frestað til næsta fundar nefndarinnar.

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:10