mobile navigation trigger mobile search trigger
30.05.2017

95. fundur félagsmálanefndar

Félagsmálanefnd - 95. fundur  

haldinn í Molanum fundarherbergi 1 og 2, 30. maí 2017 og hófst hann kl. 16:00

Fundinn sátu Hulda Sigrún Guðmundsdóttir Formaður, Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir Aðalmaður, Ásmundur Páll Hjaltason Aðalmaður, Valdimar O Hermannsson Varaformaður og Heiðar Már Antonsson Varamaður.

Fundargerð ritaði Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, félagsmálastjóri. 

Dagskrá: 

1.

1705160 - Ársreikningur Uppsala 2016

Framlagður ársreikningur Uppsala fyrir árið 2016. Félagsmálanefnd vísar ársreikningnum til bæjarráðs og vekur athygli á ábendingum og athugasemdum endurskoðanda í kjölfar könnunar á ársreikningi félagsins árið 2016.

2.

1705167 - Ársreikningur 2016 - Hulduhlíð

Framlagður ársreikningur Hulduhlíðar fyrir árið 2016. Félagsmálanefnd vísar ársreikningnum til bæjarráðs og vekur athygli á ábendingum og athugasemdum endurskoðanda í kjölfar könnunar á ársreikningi félagsins árið 2016.

3.

1608100 - Áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum

Bæjarráð vísar umfjöllun um áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum til félagsmálanefndar. Teknar voru til umræðu leiðbeinandi reglur Velferðarráðuneytisins um sérstakan húsnæðisstuðning. Félagsmálanefnd hefur nú þegar samþykkt matsviðmið fyrir sérstakan húsnæðisstuðning þar sem tekið er tillit til bæði framfærslubyrði og félagslegra aðstæðna.

4.

1704035 - 378.mál til umsagnar tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar

Velferðarnefnd Alþingis sendi til umsagnar tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar. Félagsmálanefnd gerir ekki athugasemdir við tillöguna.

5.

1705156 - Félagsleg ráðgjöf

Fært í trúnaðarbók.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30.