mobile navigation trigger mobile search trigger
26.06.2017

96. fundur félagsmálanefndar

Félagsmálanefnd - 96. fundur  

haldinn í Molanum fundarherbergi 1 og 2, 26. júní 2017 og hófst hann kl. 16:00

Fundinn sátu Hulda Sigrún Guðmundsdóttir Formaður, Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir Aðalmaður, Ásmundur Páll Hjaltason Aðalmaður, Heiðar Már Antonsson Varamaður og Helga Elísabet Guðlaugsdóttir Embættismaður. 

Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir Félagsmálastjóri. 

Dagskrá: 

1.

1706095 - Fyrirhuguð koma flóttafjölskyldna frá Reykjanesbæ

Þrjár fjölskyldur sem fengu nýlega stöðu flóttamanna fluttu frá Reykjanesbæ til Fjarðabyggðar. Rauði Krossinn á Reyðarfirði tók á móti fjölskyldunum og aðstoðaði þær við flutninga. Félagsmálanefnd þakkar sjálfboðaliðum Rauða krossins fyrir vel unnin störf.

2.

1705194 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018

Félagsmálastjóri gerði grein fyrir ferli við fjárhagsáætlanagerð fyrir árið 2018. Eins og á síðasta ári er drögum að fjárhagsrömmum fastanefnda úthlutað í maí og gert er ráð fyrir að fyrsta tillaga að starfsáætlun verði lögð fyrir fastanefndir að sumri og þar sem fram koma áherslubreytingar á starfsemi ásamt tillögum að breytingum á þjónustu. Farið var yfir fjölskyldustefnu Fjarðabyggðar og sviðsstjóra falið að gera drög að starfsáætlun á grunni þeirrar umræðu sem fram fór í nefndinni.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00.