mobile navigation trigger mobile search trigger
18.09.2017

98. fundur félagsmálanefndar

Félagsmálanefnd - 98. fundur  

haldinn í Molanum fundarherbergi 1 og 2,

18. september 2017 og hófst hann kl. 16:00

 

Fundinn sátu Hulda Sigrún Guðmundsdóttir formaður, Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir aðalmaður, Ásmundur Páll Hjaltason aðalmaður, Valdimar O Hermannsson varaformaður, Heiðar Már Antonsson varamaður, og Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir embættismaður.

Fundargerð ritaði Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir félagsmálastjóri.

Dagskrá: 

1.

1708116 - Landsfundur sveitarfélaga um jafnréttismál.

Formaður félagsmálanefndar fór ásamt starfsmanni fjölskyldusviðs á ráðstefnuna. Umfjöllun frestað til næsta fundar.

2.

1709067 – Búsetuúrræði - TRÚNAÐARMÁL

3.

1611104 - Húsnæðisstefna Fjarðabyggðar - TRÚNAÐARMÁL

4.

1709026 - Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Félagsmálanefnd

Félagsmálanefnd fór yfir fjárhagsramma og felur félagsmálastjóra áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00.