mobile navigation trigger mobile search trigger
24.05.2016

Verðfyrirspurn - innheimtuþjónusta

Fjarðabyggð óskar eftir verðupplýsingum varðandi innheimtuþjónustu á almennum kröfum á vegum bæjarfélagsins og fyrirtækja í eigu þess. Verðfyrirspurnin verður send skilgreindum mögulegum þjónustuaðilum sem þekktir eru á þessu sviði.

Hér með er þeim sem telja sig geta annast alla innheimtuþjónustu fyrir Fjarðabyggð gefinn kostur á að hafa samband og kanna með þátttöku í verðfyrirspurninni.

Nánari upplýsingar veitir fjármálastjóri Fjarðabyggðar, Snorri Styrkársson, í netfanginu snorri.styrkarsson@fjardabyggd.is eða í síma 470-9032.

Verðfyrirspurnin verður send út fimmtudaginn 2. júní 2016 og skilafrestur er til klukkan 13:00 miðvikudaginn 22. júní 2016.

Fjármálastjóri