mobile navigation trigger mobile search trigger
05.01.2018

Leikskólakennarar við Lyngholt á Reyðarfirði

Leikskólinn Lyngholt auglýsir eftir leikskólakennurum eða starfsfólki með sambærilega menntun.

Leikskólinn er sex deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum skóli á grænni grein og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og með ART.

Umsækjandi þarf að geta hafið störf 15. mars 2018. Um er að ræða 100% starf.

 Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun áskilin
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta

Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um. 

Umsóknarfrestur er til 23. febrúar 2018.

Starfslýsing leikskólakennara

Nánari upplýsingar gefur Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri í síma 4741257/860-3176 eða gegnum netfangið: lisalotta@skolar.fjardabyggd.is

Sótt er um starfið á ráðningarvef Fjarðabyggðar