75% staða náms- og starfsráðgjafa við Grunnskóla Eskifjarðar, Grunnskóla Reyðarfjarðar, Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðarskóla er laus til umsóknar. Í skólunum eru u.þ.b. 400 nemendur á aldrinu 6-16 ára. Nánari upplýsingar um skólana er að finna á heimasíðu þeirra www.grunnesk.is, www.grunnrey.is, www.fask.is og www.stodvarfjordur.is.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Hafa réttindi til að starfa við náms- og starfsráðgjöf.
- Starfsreynsla æskileg.
- Leiðtogahæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði í starfi.
- Lipurð í samskiptum.
Helstu verkefni eru:
- Persónulegur og félagslegur stuðningur við nemendur þannig að þeir eigi auðveldara með að átta sig á eigin áhugamálum og hæfileikum og setja sér raunhæf markmið.
- Leiðbeina nemendum um vinnubrögð í námi.
- Veita nemendum ráðgjöf og fræðslu um náms- og starfsval.
Staðan er laus frá 1. ágúst 2017. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ.
Umsóknarfrestur er til 29. maí og skulu umsóknir berast rafrænt á rey@skolar.fjardabyggd.is eða í merktu umslagi á skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Reyðarfirði.
Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf og ábendingar um meðmælendur. Allar frekari upplýsingar veitir Ásta Ásgeirsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Reyðarfjarðar, í síma 474 1647 eða á netfanginu asta@skolar.fjardabyggd.is