Starfsmann vantar á þjónustuíbúðirnar að Bakkabakka 15 í Neskaupstað.
Um er að ræða stuðning við fatlað fólk við allar athafnir daglegs lífs með því markmiði að það geti lifað eðlilegu lífi og tekið þátt í samfélaginu. Starfið er í vaktavinnu.
Helstu verkefni:
• Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs.
• Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum.
Hæfniskröfur:
Áhugi á málefnum fatlaðs fólks, rík þjónustulund, jákvæðni, framtakssemi og
samviskusemi.
Viðkomandi verður að hafa hreint sakavottorð og vera orðinn 18 ára.
Frekari upplýsingar veitir Kristín Ella Guðm. Forstöðuþroskaþjálfi í síma 897-0916, eða á kristin.ella.gudmundsdottir@fjardabyggd.is
Umsóknum er skilað í Íbúagátt Fjarðabyggðar.
Umsóknarfrestur er til og með 10. maí nk.