Talsverðir gróðureldar kviknuðu í Neskaupstað, á Reyðarfirði, Breiðdalsvík og Djúpavogi um og í kringum áramótin. Talið er orsökina megi í öllum tilvikum rekja til flugelda.
Starfsfólk þjónustumiðstöðva hóf í dag, 2. janúa, að hirða upp flugeldarusl og mun halda því áfram næstu daga. Eftir þrettándann hefst söfnun á jólatrjám.