Vegna breytinga á sorpkerfi Fjarðabyggðar um næstu áramót mun þurfa að fresta losun á gráu tunnunni sem á að fara fram vikuna 1. – 5. desember um eina viku. Þá verða gráa og brúna tunnan tæmdar saman, vikuna 8. – 15. desember.
Jólaljósin verða tendruð á jólatrjám víðsvegar í Fjarðabyggð dagana 29. nóvember – 3. desember og bjóðum við íbúum og gestum velkomin til að taka fyrstu skrefin inn í hátíðarljóma jólanna.
Rauði krossinn, fjölskyldusvið Fjarðabyggðar, Mæðrastyrksnefnd Kvenfélagsins Nönnu, kaþólska kirkjan, Kvenfélag Reyðarfjarðar og Þjóðkirkjan hafa í mörg í ár átt samstarf um að styðja fjárhagslega við einstaklinga og fjölskyldur sem þurfa á aðstoð að halda fyrir jólin.
Rafmagnslaust verður á hluta Reyðarfjarðar þann 3.11.2025 frá kl 21:00 til kl 21:30 vegna nauðsynlegrar viðgerðar í dreifikerfinu. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 5289000. Kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528-9000. Kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof

Lokun á vatni í dag mánudaginn 27. nóvember frá kl 13:00 til um kl 16:00. Lokunin á við um
Hafnargata 12, 13, 7, 8, 8a Fáskrúðsfirði
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér
Í ár eru 50 ár liðin frá kvennaverkfalli árið 1975. Af því tilefni hafa samtök kvenna, launafólks og fleiri hagsmunahópar boðað til samstöðufunda víða um land og mun sameiginlegur samstöðufundur á Austurlandi að þessu sinni vera á Egilsstöðum.
Fjallskilastjóri í Fjarðabyggð biður þá sem verða varir við sauðfé á fjöllum, fjarri byggð eða á fáförnum svæðum að láta vita í síma 8448565 eða á netfangið thuridur@fjarðabyggd.is