Fara í efni

Tilkynningar

31.08.2026

Rafmagnsleysi í Eskifirði

Vegna rofa hreyfinga á háspennu verður rafmagnslaust í hluta af Eskifirð frá kl. 7:00 til kl. 8:00 þann 1.9.2026.
28.08.2026

Kjörstaðir í Fjarðabyggð 29. ágúst 2026

Við þjóðaratkvæðagreiðslu laugardaginn 29. ágúst 2026 verður kosið á sjö kjörstöðum í Fjarðabyggð.
28.08.2026

Tímabundin lokun á Hringvegi milli Stöðvarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar

Vegna viðhaldsframkvæmda og steypuvinnu á einbreiðri brú yfir Tungudalsá í Fáskrúðsfirði verður Hringvegur (1) milli Stöðvarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar lokaður tímabundið mánudaginn 31. ágúst 2026.
27.08.2026

Truflanir á vatnsrennsli á Reyðarfirði

Núna síðdegis, fimmtudaginn 27. ágúst, má gera ráð fyrir tímabundnum truflunum á vatnsrennsli á hluta Reyðarfjarðar vegna prófana á vatnslokum í dreifikerfinu.
27.08.2026

Auglýsing um skipulag - Fjarðabyggð

Bæjarráð Fjarðabyggðar samþykkti fyrir hönd bæjarstjórnar á 952 fundi sínum þann 20.07.2026 að auglýsa tillögu um breytingu á Deiliskipulagi Dalur 1, íþróttasvæði Eskifirði vegna breytinga á lóðinni Dalbraut 3a.
27.08.2026

Opnun Sundlaugar Eskifjarðar

Stefnt er að því að opna Sundlaug Eskifjarðar aftur klukkan 07:00 á morgun, 28. ágúst.
24.08.2026

Rafmagnslaust á Eskifirði að morgni 25. ágúst

Vegna spennusetningar á nýrri rofastöð við Strandgötu verður rafmagnslaust á Eskifirði þriðjudaginn 25. ágúst frá kl. 7:30 til 8:00.
24.08.2026

Bókasafnið í Neskaupstað lokað þriðjudaginn 25. ágúst

Bókasafnið í Neskaupstað verður lokað þriðjudaginn 25. ágúst.
20.08.2026

Rafmagnsblikk í Eskifirði í dag 20.08.2026

Vegna rofahreyfing á háspennu strengjum verður stutt rafmagnsleysi í hluta af Eskifirði milli kl 10:30 og 11:15 20.08.26, beðist er velvirðingar á stuttum fyrirvara. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528-9000. Kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof
18.08.2026

Bæjarstjórnarfundur fimmtudaginn 20. ágúst

Boðað hefur verið til 419. fundar bæjarstjórnar Fjarðabyggðar fimmtudaginn 20. ágúst. Fundurinn verður haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunni að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði og hefst kl. 16:00.
07.08.2026

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hafin

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið hófst 27. júlí. Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram laugardaginn 29. ágúst 2026.
05.08.2026

Tímabundin lokun Íþróttamiðstöðvar Eskifjarðar

Vegna viðhalds verður Íþróttamiðstöð Eskifjarðar, ásamt sundlauginni, lokuð frá klukkan 21:00 miðvikudaginn 12. ágúst.
01.08.2026

Móttökustöðvar lokaðar um verslunarmannahelgina

Móttökustöðvar í Fjarðabyggð eru lokaðar í dag, 1. ágúst, og mánudaginn 3. ágúst vegna verslunarmannahelgarinnar.
30.07.2026

Opnunartími íþróttamiðstöðva á frídegi verslunarmanna 3. ágúst

Vegna frídags verslunarmanna verða sundlaugin á Eskifirði og íþróttamiðstöðvar Fjarðabyggðar lokaðar mánudaginn 3. ágúst. Stefánslaug verður opin frá kl. 10:00–18:00.
30.07.2026

Ný gjaldskrá fyrir söfnunar- og móttökustöðvar Fjarðabyggðar

Fjarðabyggð hefur samþykkt nýja gjaldskrá Kubbs ehf. vegna móttöku og meðhöndlunar úrgangs. Gjaldskráin tekur gildi frá og með 10. ágúst næstkomandi og falla þá úr gildi klippikort Fjarðabyggðar.
20.07.2026

Sumarlokun afgreiðslu bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar

Afgreiðsla bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar verður lokuð dagana 27. júlí til og með 7. ágúst. Tekið er á móti erindum á netfanginu fjardabyggd@fjardabyggd.is eða í gegnum ábendingargátt Fjarðabyggðar. Ef erindið er vegna barnaverndarmála er hringt í neyðarlínuna 1-1-2 og bilanir í veitum tilkynnast í vaktsíma 470 9060.
17.07.2026

Rafmagnsblikk í Eskifirði mánudaginn 20.júlí

Vegna rofahreyfing á háspennu strengjum verður stutt rafmagnsleysi í hluta af Eskifirði á milli kl. 10:00 til kl. 11:00 þann 20.7.2026.
15.07.2026

Opnunartímar í sundlauginni á Fáskrúðsfirði yfir Franska daga

Í tilefni Franskra daga verður sundlaugin á Fáskrúðsfirði opin á eftirfarandi tímum
07.07.2026

Tilkynning vegna þyrluumferðar í Neskaupstað á morgun 8. júlí

Ef veður leyfir verður þyrluflug í Neskaupstað vegna vinnu við ofanflóðavarnir.
06.07.2026

Söfnun á rúlluplasti og áburðarpokum í dreifbýli

Terra mun í næstu viku, að beiðni Fjarðabyggðar, sjá um að sækja rúlluplast og áburðarpoka hjá bændum í dreifbýli sveitarfélagsins og koma efninu til úrvinnslu. Stefnt er að því að hefja söfnun í Breiðdal mánudaginn 14. júlí. Þeir bændur sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru beðnir um að senda tölvupóst á fjardabyggd@fjardabyggd.is eða hringja í síma 470 9000. Bændur eru jafnframt beðnir um að safna áburðarpokum saman, til dæmis með því að setja þá í einn poka, áður en þeir eru sóttir.