Foreldrar og forráðamenn eru boðin velkomin á áhugaverðan fyrirlestur Lísu M. Gunnarsdóttur talmeinafræðings um málþroska barna og þá þætti sem hafa áhrif á hann.
Þann 29. ágúst opnar sýningin *VÖLVUMYRKVI: she who helps us see past corners* eftir listakonuna Helgu Dorotheu Fannon í Þórsmörk. Helga hefur dvalið í Þórsmörk listamannasetri og unnið að nýjum verkum þar sem hún fléttar saman hreyfimyndum, hljóði, skúlptúrum og innsetningum.
Fyrsta Orkuskot haustsins verður haldið í Tónspili í Neskaupstað 1. september kl. 16. Þar fjallar Kolbeinn Óttarsson Proppé, framkvæmdastjóri Grænafls, um rafvæðingu smábáta og þau tækifæri sem felast í orkuskiptum minni fiskiskipa.
Verkmenntaskóli Austurlands er 40 ára í ár, 1986 - 2026.
Höldum upp á afmæli skólans og hefjum leika á tónleikum föstudagskvöldið 4. september þar sem fyrrum nemendur skólans í gegnum árin munu sjá um að halda uppi stuðinu.
Saga Unn opnar formlega listaverkið Beðið (a flowerbed (or waiting)) í Sköpunarmiðstöðinni á Stöðvarfirði föstudaginn 5. september kl. 17:00. Verkið er áttunda innsetningin í kennslubókaröð Sögu Unn og hluti af langtímaverkefni hennar þar sem ólíkum rýmum er umbreytt með endurunnum kennslu- og skólabókum.