Til hamingju með daginn sjómenn!
30.05.2025
Fjarðabyggð sendir öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra kærar kveðjur í tilefni sjómannadagsins.
Fjarðabyggð sendir öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra kærar kveðjur í tilefni sjómannadagsins.
Íþróttadagur Grunnskólanna í Fjarðabyggð var haldinn 21. maí sl. í Grunnskóla Reyðarfjarðar. Þangað komu nemendur 7. – 10. bekkjar úr öllum grunnskólum sveitafélagsins. Dagskráin hófst um hádegi og fór fram til 17:00. Þar var árgöngum skipt eftir litum og nemendur hvattir til þess að klæða sig í viðeigandi lit til þess að sýna samheldni.
Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur samþykkt nýja málstefnu sem markar skýra stefnu sveitarfélagsins í málnotkun og þjónustu við íbúa og aðra aðila. Meginmarkmið stefnunnar er að efla, vernda og tryggja notkun íslenskrar tungu í öllu starfi og þjónustu sveitarfélagsins, auk þess sem hún viðurkennir mikilvægi fjöltyngis og aðgengis fyrir alla íbúa.
Sjómannadagurinn er sunnudaginn 1. júní og honum verður fagnað með fjölbreyttum hætti í Neskaupstað, Eskifirði og Fáskrúðsfirði um helgina. Dagskráin hefst í Neskaupstað á miðvikudaginn og fimmtudaginn á Eskifirði. Boðið verður upp á siglingar, skemmtidagskrár, dorgveiðikeppni og margt fleira.

Aðalfundarboð.
Þroskahjálp á Austurlandi boðar til aðal- og endurreisnarfundar
laugardaginn 17. maí klukkan 11 í Sláturhúsinu á Egilsstöðum.
Vakin er athygli á óvenjulegu veðri (miðað við árstíma) sem gengur yfir landið á morgun og þriðjudag. Gefnar hafa verið út gular og appelsínugular viðvaranir og má fylgjast með þróun þeirra hér: https://vedur.is/vidvaranir.
Framkvæmdir við Drangargil hefjast nú á næstu dögum. Til stendur að framkvæmdartíminn verði sumrin 2025, 2026 og 2027.
Að gefnu tilefni bendum við á að öll losun garðúrgangs er nú bönnuð við Teigagerði á Reyðarfirði. Verið er að hreinsa upp svæðið um þessar mundir. Við viljum benda íbúum á að innan við móttökustöð, Hjallanesi 8 er hægt að losa garðaúrgang allan sólarhringinn.
Einnig viljum við benda á að enn er nóg af lausu plássi í kartöflugörðunum við Teigagerði, íbúum að kostnaðarlausu.