mobile navigation trigger mobile search trigger

Sjávarútvegur 2016

Fjarðabyggðarhafnir verða á meðal þátttakenda á stórsýningunni Sjávarútvegur - Iceland Fishing EXPO 2016. sem fram fer í Laugardalshöllinni dagana 28. til 30 september nk.

Sýningin er ætluð fagaðilum og öðrum áhugasömum aðilum sem vilja kynna sér framfarir og nýjungar innan sjávarútvegarins, en á annað hundruð fyrirtæki, þjónustuaðilar og umboðsaðilar hafa skráð sig til leiks, bæði innlendir og erlendir.

Aðstaða Fjarðabyggðarhafna er á svæði A13 í fremri sýningarhöllinni og vonumst við til að sjá sem flesta á staðnum. Sýningin er opin kl. 15:00-19:00 miðvikudaginn 28. september og kl. 10:00-18:00, dagana 29. til 30. september.