mobile navigation trigger mobile search trigger
20.02.2024

Aðstoðarmatráður í Skólamötuneyti Fáskrúðafjarðar

Hefur þú áhuga á að starfa með börnum? Grunnskólinn á Fáskrúðsfirði og leikskólinn Kæribær leita eftir áhugasömum, jákvæðum og sjálfstæðum aðila í starf aðstoðarmatráðs. Um hlutastarf er að ræða.

Skólamötuneytið þjónustar um 45 starfmenn og 150 nemendur skólamiðstöðvarinnar.

Hæfniskröfur : 

  • Þekking og reynsla af matseld og næringu.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Íslensku kunnátta.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Frumkvæði og skipulagshæfni.

Helstu verkefni:

  • Umsækjandi vinnur undir stjórn yfirmatráðs.
  • Sér um almenn þrif í eldhúsi, gengur frá matvörum og aðstoðar við matseld.
  • Hefur umsjón með ýmsum öðrum verkefnum sem yfirmenn hans segja til um og samkvæmt starfslýsingu.

Starfslýsing - aðstoðarmatráður

Áhugasamir einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf 2. maí, 2024

Umsóknarfrestur: 12. apríl, 2024

Nánari upplýsingar veitir Ásta Eggertsdóttir leikskólastýra, í síma 4759055/868-3297 eða á netfanginu astae@skolar.fjardabyggd.is eða Guðnýju Elísdóttur í síma 4759055

Frétta og viðburðayfirlit