mobile navigation trigger mobile search trigger
08.04.2024

Misjöfn verða morgunverkin

Undanfarnar vikur hafa nemendur 9. bekkjar í grunnskólanum á Reyðarfirði ígrundað Laxdælu, eina að perlum íslenskra bókmennta. Í vikunni sýndu þau afrakstur þeirra vinnu.

Nemendur lásu saman söguna og ræddu um þær litríku persónur sem þar koma fyrir. Söguþráður Laxdælu er spennandi og samspil persóna einstakt.

Misjöfn verða morgunverkin

Laxdæla er oft sögð frægasta ástarsaga íslenskra bókmennta. Nemendur fengu síðan frjálsar hendur við að vinna lokaverkefni úr sögunni og voru verkefni þeirra mjög fjölbreytt. Þar var hringur Melkorku, smíðaður úr 100 kr. peningi, sverð af ýmsum toga, myndband, myndverk, frásagnir og leirlistarverk, svo eitthvað sé nefnt. Einn nemandi gerði heimasíðu sem skoða má hér.

Nemendur buðu foreldrum sínum, kennurum og nemendum 8. bekkjar á sérstaka sýningu á verkum sínum og má sjá myndir frá sýningunni hér.

Frétt af heimasíðu grunnskólans á Reyðarfirði

Frétta og viðburðayfirlit